Bág fjárhagsstaða hjá starfsfólki í leikskólum

Höfundur

Ritstjórn

Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins kynnir nýja skýrslu um fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði og heilsu starfsfólks í leik- og grunnskólum í samanburði við annað launafólk 

Hærra hlutfall þeirra sem starfa í leikskólum býr við verri fjárhagsstöðu en annað launafólk í heildarsamtökunum tveimur. Starfsfólk í grunnskólum býr að jafnaði einnig við verri fjárhagsstöðu en annað launafólk. 

Helmingur þeirra sem starfa í leikskóla getur ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum

Hátt hlutfall leikskólastarfsfólks (49%) gæti ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum án þess að stofna til skuldar. Hið sama á við um tæplega fjóra af hverjum tíu þeirra sem starfa í grunnskólum (37%). Hlutfallið er 30% þegar litið er til annars launafólks innan ASÍ og BSRB.

Þriðjungur þeirra sem starfa í leikskóla býr við skort eða verulegan skort á félags- og efnislegum gæðum

Í könnuninni var spurt um þrettán þætti sem Hagstofa Evrópusambandsins notar til að mæla efnahagslega og félagslega stöðu fólks. Þættirnir sem spurt er um varða rekstur heimilis en einnig einstaklingsbundna þætti. Niðurstöðurnar sýna að umtalvert hærra hlutfall, sér í lagi þeirra sem starfa í leikskóla, býr samkvæmt skilgreiningu við félags- og efnislegan skort en það á við um 34% þeirra. Af þeim eru 18% sem búa við verulegan skort á félags- og efnislegum gæðum. Fjórðungur þeirra sem starfa í grunnskólum fellur  undir sömu skilgreiningu (25%) en sama á við um ríflega fimmtung almennt meðal launafólks (22%).

Hærra hlutfall foreldra sem starfa í leik- og grunnskólum skortir grunnþætti fyrir börnin sín

Um eða yfir fjórðungur þeirra sem starfa í leik- og grunnskólum og eru með börn á heimili hefur  sökum fjárskorts á síðastliðnu ári ekki getað greitt kostnað vegna félagslífs barna sinna, nauðsynlegan fatnað fyrir börn sín eða gefið börnum sínum eins næringarríkan mat og þau vilja. Hlutfallið er í öllum tilfellum hærra en almennt meðal launafólks í heildarsamtökunum tveimur. 

Lægra hlutfall starfsfólks í leikskólum er í eigin húsnæði

Mikill munur er á stöðu leikskólastarfsfólks og grunnskólastarfsfólks á húsnæðismarkaði. Meirihluti þeirra sem starfa í grunnskóla er í eigin húsnæði eða ríflega sjö af hverjum tíu (73%). Sama á hins vegar við um tæplega sex af hverjum tíu meðal þeirra sem starfa í leikskólum (57%). 

Fjórir af hverjum tíu þeirra sem starfa í leikskóla mælast með slæma andlega heilsu

Hátt hlutfall leikskólastarfsfólks mælist með slæma andlega heilsu eða fjórir af hverjum tíu (38%) en sama á við mun lægra hlutfall þeirra sem starfa í grunnskólum eða tæplega fjórðung (23%). Tæplega helmingur þeirra sem starfa í leikskóla finnur  meira en helming tímans eða daglega fyrir þreytu og orkuleysi (48%). Tæplega þremur af hverjum tíu líður illa með sjálfan sig eða finnst að þeir hafi ekki staðið sig í stykkinu gagnvart sjálfum sér eða fjölskyldu sinni (28%). 

Í skýrslunni er greint frá stöðu starfsfólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB sem starfa í leik- og grunnskólum. Skýrslan nær ekki til fagmenntaðra kennara þar sem þeir eru ekki félagar í heildarsamtökunum tveimur.  

Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins leggur árlega fyrir könnun meðal launafólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Í könnun Vörðu var spurt um stöðu á vinnumarkaði og starfsgreinar sem og um fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði og líkamlega og andlega heilsu. Rannsóknin náði til félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og BSRB – heildarsamtaka stéttarfélaga starfsmanna í almannaþjónustu og var lögð fyrir í júní og júlí 2025. Þetta er fimmta árið í röð sem könnun á lífsskilyrðum launafólks er gerð og hefur fjöldi svara aldrei verið meiri en nú þar sem tæplega 25.000 svör bárust. 

Í skýrslunni er að finna ítarlega greiningu á niðurstöðum rannsóknarinnar Skýrsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Tengdar fréttir

  • Tímamótasamþykkt ILO um nýtingu gervigreindar

    Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) hefur samþykkt fyrstu alþjóðlegu niðurstöðurnar og leiðbeiningarnar um…

    Ritstjórn

    29. apr 2026

  • Sálfélagsleg áhætta í starfi  – rúmlega 840.000 dauðsföll á ári

    Nýjar niðurstöður Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) varpa skýru ljósi á alvarlega þróun…

    Ritstjórn

    27. apr 2026

  • Fulltrúar ASÍ og stéttarfélaganna sóttu námskeið um misneytingu aðflutts launafólks

    Fulltrúar ASÍ og stéttarfélaga sóttu í mars námskeið í Helsinki…

    Ritstjórn

    24. apr 2026