„Það þýðir ekki að einblína bara á alvarlegustu brotin“

Höfundur

Ritstjórn

Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá Alþýðusambandi Íslands ræddi við fréttastofu RÚV um stöðu fórnarlamba mansals og misneytingar. Kveikur fjallaði í vikunni um umfang vændis á Íslandi og fórnarlömb vændismansals.

„Það er oft talað um að mansal byggir á hagnýtingu og sé hagnaðardrifið. Það er því miður arðbært að hagnýta fólk og stundum er hættan fyrir þá sem eru að hagnýta lítil. Þannig að það getur verið mikill hagnaður og lítil áhætta. Það held ég að eigi við bæði um vinnumansal og vændismansal,“ segir Saga í samtali við RÚV.

„Það þýðir ekki að einblína bara á alvarlegustu brotin því að misneyting (e. labour exploitation) getur orðið að mansali ef hún er óáreitt. Og ef við erum með þannig umhverfi að misneyting þrífst, þá þrífst mansal líka,“ segir Saga.

Lesa má viðtalið í heild sinni hér á vef RÚV.

Tengdar fréttir

  • Stefna og aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn brotastarfsemi á vinnumarkað

    Stjórnvöld hafa birt fyrstu stefnu sína og aðgerðaáætlun gegn brotastarfsemi…

    Ritstjórn

    3. mar 2026

  • Þrældómur nútímans – málþing um vinnumansal

    Íslandsdeild Amnesty International stendur fyrir málþingi um birtingarmyndir vinnumansals á…

    Ritstjórn

    28. jan 2026

  • ASÍ varar við skerðingu á eftirlitsgetu verkalýðshreyfingarinnar

    Alþýðusamband Íslands hefur skilað umsögn um drög að frumvarpi dómsmálaráðherra…

    Ritstjórn

    10. nóv 2025