Í dag er 1. maí haldinn hátíðlegur um land allt. Hægt er að skoða dagskrár fyrir 1. maí 2025 um land allt á heimasíðunni www.1mai.is.
Í Reykjavík hefst kröfuganga frá Skólavörðuholti klukkan 13:30 og er gengið sem leið liggur niður Skólavörðustíg og Bankastræti. Útifundur hefst svo á Ingólfstorgi klukkan 14:00.
Við hvetjum öll til þess að mæta í gönguna, en fyrir þau sem ekki komast verður streymt beint frá baráttufundinum hér fyrir neðan:





