Úthlutun úr Minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar 1. maí 2026

Höfundur

Ritstjórn

Á hverju ári er styrkjum úr Minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar úthlutað til verkefna sem varða sérstaklega íslenskan vinnumarkað, hagsmuni launafólks og starfsemi verkalýðshreyfingarinnar.

Í ár samþykkti stjórn sjóðsins að veita eftirfarandi styrki:

Stefán Hrafn Jónsson hlaut styrk til að vinna að alþjóðlegri rannsókn á sjúkdómsbyrði (Global Burden of Disease (GBD)) með áherslu á dánarmein og dánartíðni eftir menntun. Verkefnið mun skila nýrri þekkingu um dánartíðni og félagslegan ójöfnuð á Íslandi og leggja grunn að alþjóðlegum samanburði þar sem íslensk gögn verða hluti af stærra samhengi. Niðurstöðurnar munu hafa bæði fræðilegt gildi og hagnýtt mikilvægi fyrir stefnumótun í lýðheilsu og málefnum launafólks.

Vésteinn Valgarðsson hlaut styrk til að þýða bók eftir Rósu Luxemburg Þjóðfélagsumbætur eða bylting.  Verkalýðssinnar hafa lengur en elstu menn muna deilt um hvort hægt sé að betrumbæta kjör verkalýðsins innan ramma kapítalismans, eða hvort það sé ekki hægt, hvort hægt sé að ná fullnægjandi árangri með umbótum einum, eða hvort nauðsynlegt sé að afnema kapítalismann og koma á sósíalisma. Ádeilurit Rósu Luxemburg frá 1898, þar sem hún tekst á við þessar spurningar í ritdeilu við Eduard Bernstein, í pólitískri og fræðilegri deilu innan þýska sósíaldemókrataflokksins, er eitt mikilvægasta framlagið í þessari rökræðu, sígilt rit sem stöðugt er vitnað til.

Adam Fishwick og Guðmundur Ævar Oddsson hlutu styrk fyrir verkefnið Union renewal in Iceland: a case study of Efling.  Markmiðið verkefnisins er að greina skipulagsbreytingar hjá Eflingu frá 2018 og áhrif þeirra á fjölbreyttan félagsmannahóp. Félagið hefur tekið miklum breytingum, m.a. með auknum fjölda innflytjenda, nýrri forystu og breyttum starfsháttum. Verkefnið skoðar hvernig þessar breytingar hafa haft áhrif á þátttöku og stöðu félagsmanna, með viðtölum og rýnihópum.

Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar var stofnaður árið 1983 til minningar um Eðvarð Sigurðsson, formann Verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Sjóðurinn er í umsjá Alþýðusambands Íslands.

Stjórn sjóðsins skipa: Finnbjörn A. Hermannsson, Grétar Þorsteinsson og Sólveig Anna Jónsdóttir.

Tengdar fréttir

  • Varða kynnir niðurstöður um stöðu starfsfólks í leik- og grunnskólum

    Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins kynnir á fimmtudag nýja skýrslu um stöðu…

    Ritstjórn

    30. apr 2026

  • Tímamótasamþykkt ILO um nýtingu gervigreindar

    Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) hefur samþykkt fyrstu alþjóðlegu niðurstöðurnar og leiðbeiningarnar um…

    Ritstjórn

    29. apr 2026

  • 1. maí haldinn hátíðlegur um land allt

    1. maí verður haldinn hátíðlegur um land allt næstkomandi föstudag. Hægt…

    Ritstjórn

    29. apr 2026