Félagsmálaskóli alþýðu býður upp á námskeið vegna hæfismats fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Námskeiðið fer fram þann 18. ágúst næstkomandi til 21. ágúst. Námskeiðið veitir yfirsýn yfir ábyrgð, skyldur og hlutverk þeirra sem sitja í stjórnum lífeyrissjóða og er ætlað bæði tilvonandi og núverandi stjórnarmönnum í lífeyrissjóðum til undirbúnings fyrir hæfismat hjá fjármálaeftirliti SÍ.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að undirbúa stjórnarmenn í lífeyrissjóðum undir þá þætti í starfsemi lífeyrissjóðanna sem tekið hefur verið mið af í matinu.
Farið verður yfir eftirfarandi þætti:
- Hlutverk stjórnarmanna og starfsemi lífeyrissjóða
- Sjálfstæði, dómgreind og viðhorf
- Reikningsskil og endurskoðun lífeyrissjóða
- Fjárfestingastefnu og áhættumat
Leiðbeinendur:
Kristján Geir Pétursson, lögfræðingur hjá Birtu lífeyrissjóði.
Tómas N. Möller lögfræðingur hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna.
Vignir Rafn Gíslason, löggildir endurskoðandi og eigandi PWC.
Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri LL.
Jón Sigurðsson, löggiltur endurskoðandi hjá PWC.
Nánri upplýsingar
- Dagsetning: 18/08/2026 – 21/08/2026
- Tími: 09:00 – 16:00
- Staður: Bárubúð, Guðrúnartúni 1, (Skrifstofur ASÍ – 1. hæð)
- Verð: 260000 ISK


