Nýr samanburður Verðlagseftirlits ASÍ á matvöruverði sýnir að verðmunur á einstökum vörum er víða mikill og í mörgum tilvikum fer hann yfir 30 prósent. Verðmunur er gjarnan minni í lágvöruverslunum eða oft á bilinu 5-10% frá lægsta verði. Niðurstöðurnar undirstrika að neytendur geta sparað umtalsverðar fjárhæðir með því að bera saman verð milli verslana. Samkvæmt úttektinni er ódýrasta verðið á matvöru að finna í Prís en þar á eftir fylgja Bónus og Krónan.
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á matvöru dagana 8-14. júní í níu verslunum. Verð voru könnuð í Bónus, Krónunni, Nettó, Hagkaupum, Krambúðinni, Kjörbúðinni, Fjarðarkaupum, Prís og SPAR.
Prís ódýrust af lágvöruverslunum
Þegar verð eru borin saman á 289 vörum sem fengust í lágvöruverslunum, þeim Bónus, Krónunni, Nettó og Prís var lægsta verðið oftast að finna í Prís.
Verslunin er með lægsta verð á fjölmörgum vörum í öllum helstu vöruflokkum, þar á meðal mjólkurvörum, brauðvörum, kjötvörum, drykkjarvörum og ýmsum þurrvörum. Að jafnaði var verð á vörum í Bónus um 5,5% hærra en þar sem varan fékkst á lægsta verði, sem í nær öllum tilfellum var í Prís. Verð í vörum í Krónunni var að jafnaði 6% hærra og Nettó um 11% hærra.
Tæplega 8 þúsund króna verðmunur á vörukörfunni í lágvöruverslunum
Sé vörukarfa með 100 algengum neysluvörum fyrir heimili skoðuð var lægsta verðið einnig að finna í Prís þar sem hún kostaði 60.395 krónur samanborið við 68.127 kr. í Nettó þar sem vörukarfan var dýrust. Í Bónus kostaði sama karfa 64.373 kr. og í Krónunni 64.546 kr. Vörulistann má í heild sinni sjá hér.
Mikill verðmunur á algengum neysluvörum
Vöruúrval getur verið mjög breytilegt milli þeirra fjölda verslana sem verðlagseftirlitið heimsótti og einnig getur verið munur á stærð pakkninga sömu vara. Af þeim vörum sem fáanlegar voru í öllum níu verslununum var algengt að verðmunur væri bilinu 25-70%. Mest munaði á verði á heimilisbrauði frá Myllunni sem var meira en tvöfalt dýrara í Krambúðinni heldur en í Prís. Mikill verðmunur er ekki aðeins á sérvörum heldur einnig á algengum neysluvörum sem finna má á flestum heimilum. Í flestum tilfellum var hæsta verðið að finna í Krambúðinni og þar á eftir í Hagkaupum. Listann má í heild sinni finna hér.
Á meðal dæma má nefna:
- MS léttmjólk, 1 lítri kostaði frá frá 259 krónum í Prís upp í 369 krónur í Krambúðinni, sem jafngildir 42 prósenta verðmun.
- Nýmjólk var á bilinu 259 í Prís og 369 krónur í Krambúðinni , einnig 42 prósenta munur.
- KEA smáskyr var á bilinu 201 til 289 krónur eftir verslunum, eða 44 prósenta munur. Ódýrust var það í Prís en dýrast í Krambúðinni.
- Heimilisjógúrt með jarðarberjabragði kostaði frá 492 krónum í Prís upp í 649 krónur í Krambúðinni, sem er 32 prósenta munur.
- Góðostur í sneiðum kostaði á bilinu 1.105 í Prís og 1.399 krónur í Krambúðinni, eða 27 prósenta munur.
Meiri verðmunur í krónum á kjöt og fisk
Mestur verðmunur í krónum talið mældist á stærri og dýrari kjötvörum.
Kjarnafæði Lúxus Lambalæri kostaði frá 2.599 kr/kg í Prís upp í 4.779 kr/kg í Nettó, sem jafngildir 84 prósenta verðmun og rúmlega 2.100 króna mismun á kr/kg.
Ali brakandi lærakjöt var á bilinu 1.659 til 2.239 krónur, eða 35 prósenta munur. Þá kostaði kjúklingabringur frá 2.110 kr/kg upp í 2.759 kr/kg krónur eftir verslunum.
Verð á ávöxtum og grænmeti einnig breytilegt
Verð á grænmeti og ferskvöru var sömuleiðis breytilegt. Rauð epli voru ódýrust í Prís á 399 kr/kg en þar eftir fylgdi krónan á 413 kr/kg og Bónus á 459 kr/kg. Spergilkál kostaði frá 479 krónum upp í 749 krónur, sem er 56 prósenta munur. Lambhagasalat var á bilinu 459 til 799 krónur, eða 74 prósenta munur. Verðmunur á sveppum og tómötum var minni, eða 13 og 12 prósent.
Þúsundir króna geta skilið á milli
Þótt munurinn á einstökum vörum virðist oft ekki mikill getur hann safnast hratt upp þegar keyptar eru margar vörur í einni innkaupaferð.
Könnunin sýnir að verðmunur á algengum dagvörum er enn mikill og að sérstaklega getur borgað sig að fylgjast með verði á kjöti, mjólkurvörum og brauðvörum þar sem munurinn er gjarnan mikill..
Um könnunina
Í könnuninni var verð á matvöru kannað í níu verslunum dagana 8-14. júní. Verð voru könnuð í Bónus, Krónunni, Nettó, Hagkaupum, Krambúðinni, Kjörbúðinni, Fjarðarkaupum, Prís og SPAR.
Í verðsamanburði er miðað við hilluverð sem neytandi hefur upplýsingar um í versluninni. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur/tilboðsverð af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð.
Öll verð ásamt nýjustu verðum geta neytendur nálgast í Nappinu eða á verdlagseftirlit.is
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.




