Gjaldskrár frístundaheimila fyrir grunnskólabörn hafa tekið umtalsverðum breytingum undanfarin ár og er mikill munur bæði á verðlagi og hækkunum milli sveitarfélaga. Samanburður á gjöldum hjá 14 sveitarfélögum sýnir að hækkanir frá árinu 2023 til 2026 eru á bilinu 4% upp í 36%.
Mestu hækkanirnar eru í Fjarðabyggð. Í Reykjanesbæ og Kópavogi hækka gjöldin um 17%, úr 20.266 krónum árið 2023 í 23.673 krónur árið 2026 í Reykjanesbæ og úr 28.488 krónum í 33.349 krónum í Kópavogi á sama tímabili. Í Fjarðabyggð nemur hækkunin 36%, þar sem gjöld fara úr 17.073 krónum í 23.247 krónur á sama tímabili.
Minnstu breytingarnar eru í Vestmannaeyjum, Akureyri og á Seltjarnarnesi þar sem hækkun gjalda er á bilinu 4–10%.
Hæstu gjöldin á höfuðborgarsvæðinu á Seltjarnarnesi
Garðabær og Kópavogur verða áfram meðal dýrustu sveitarfélaganna þegar kemur að frístundaheimilum. Þar hefur gjaldskráin hækkað úr 32.662 krónum í 34.400 krónur í Garðabæ, eða um 5% en úr 28.488 krónum í 33.349 kr í Kópavogi eða um 17%. Á Seltjarnarnesi eru gjöldin hæst eða 38.750 krónur árið 2026, þó hækkunin þar sé minni en víða annars staðar.
Í Reykjavík hækka gjöld frístundaheimila um 15% á tímabilinu og fara úr 21.310 krónum í 24.452 krónur. Sambærileg þróun er í Árborg og á Akranesi þar sem hækkunin er einnig um 15%.
Mosfellsbær sker sig úr í samanburðinum sem eina sveitarfélagið þar sem gjöld lækka. Þar lækkar mánaðargjaldið um 2%, úr 26.586 krónum árið 2023 í 25.984 krónur árið 2026.
Gjöld hækkað umfram verðbólgu í Fjarðarbyggð
Þrátt fyrir mismunandi þróun er ljóst að kostnaður foreldra vegna frístundaheimila hefur víða aukist töluvert á síðustu árum. Munurinn milli sveitarfélaga er jafnframt áfram mikill; árið 2026 munar yfir 20 þúsund krónum á hæstu og lægstu gjaldskránni í samanburðinum. Sé tekið tillit til verðbólgu má sjá að yfir sama tímabil hefur verðbólga verið 20% því er hægt að sjá að einungis í Fjarðarbyggð hafa gjöld hækkað umfram verðbólgu.
Um úttektina
Miðast þessi úttekt við eitt barn í 63 stunda vistun á mánuði eða um 3 klukkustundir á dag auk þess að fá síðdegishressingu. Sé horft til að fleiri en eitt barn sé í vistun í frístund er ýmist veittur afsláttur af gjaldi þess barns eða gjaldi elsta barns, en hann er ýmist 25-100% fyrir annað barn en 75-100% fyrir þriðja barn.
Sum sveitarfélög bjóða uppá sérstaka afslætti fyrir ákveðna hópa, t.d. veitir Kópavogsbær 25% afslátt fyrir einstæða foreldra, öryrkja og námsmenn. Garðabær veitir tekjutengdan 40% afslátt af almennu dvalargjaldi fyrir einstaklinga eða fjölskyldur undir tekjuviðmiðum. Akranes býður einnig uppá afslátt fyrir einstæða foreldra. Í Fjarðarbyggð býðst einstaklingum með árslaun undir 9.000.000 krónum og sambúðarfólki með árslaun undir 13.600.000 krónum 50% afsláttur af dagvistunargjaldi.




