Samið um Næsta skref

Höfundur

Ritstjórn

NÆSTA SKREF, upplýsinga- og ráðgjafarvefur sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur rekið undanfarin ár, hefur verið opnaður á ný. Var það gert í kjölfar þess að stjórnvöld og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins náðu samkomulagi um áframhaldandi rekstur vefjarins sem mennta- og barnamálaráðuneytið, félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og Jöfnunarsjóður sveitarfélaga munu framvegis fjármagna.

Tilgangur vefjarins (naestaskref.is) er að tryggja að á einum stað séu greinargóðar og aðgengilegar upplýsingar um námsframboð á framhaldsskóla-, framhaldsfræðslu- og háskólastigi, störf á íslenskum vinnumarkaði, náms- og starfsráðgjöf og raunfærnimatsleiðir. Auk þess styrkir vefurinn almenna fræðslu í menntastofnunum um nám og störf.

Mikil notkun

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hóf verkefnið Næsta skref árið 2013 og hélt vefnum úti fram í maí á þessu ári þegar fjárframlag til rekstursins þraut. Neyddist stjórn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins þá til að loka vefnum og var sú ákvörðun stjórninni þungbær enda hafði fjöldi notenda margfaldast og nálgast 70.000 á ári hverju. Í ljósi mikillar notkunar almennings, hjá símenntunarmiðstöðvum og innan formlega skólakerfisins, taldi stjórn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins það ekki valkost að halda vefnum áfram úti með lágmarkstilkostnaði.

Samið til fimm ára

Þann 27. fyrra mánaðar undirrituðu Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Hildur Betty Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, samning um áframhaldandi rekstur vefjarsins. Samningurinn er til fimm ára og verður rekstur og þróun vefjarins í höndum Menntamálastofnunar sem jafnframt mun leiða ritstjórn hans. Áætlaður kostnaður við þróun og rekstur vefjarins er 21 milljón króna á ári.

Mynd:

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Hildur Betty Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, við undirritun samningsins.

Tengdar fréttir

  • Alþýðusamband Íslands og Lúðrasveit verkalýðsins hafa endurnýjað samstarf sitt

    Samstarf þessara tveggja aðila á sér djúpar rætur í íslenskri…

    Ritstjórn

    3. jún 2025

  • ASÍ styrkir Samhjálp um páska

    ASÍ styrkir Samhjálp um 400 þúsund krónur nú í aðdraganda…

    Arnaldur Grétarsson

    15. apr 2025

    Kaffistofa Samhjálpar og merki Samhjálpar
  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2025

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Arnaldur Grétarsson

    8. apr 2025

    Eðvarð Sigurðsson