Ályktun miðstjórnar ASÍ um miðlunartillögu Ríkissáttasemjara

Höfundur

Ritstjórn

Miðstjórn ASÍ lýsir því yfir að traust á embætti ríkissáttasemjara hefur skaðast með því að leggja fram ótímabæra miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og SA. Miðstjórn telur að færa megi rök fyrir og véfengja hvort embætti sáttasemjara hafi með þessum hætti farið út fyrir þær valdheimildir sem embættinu eru settar í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Framganga embættisins er atlaga að sjálfstæðum samningsrétti stéttarfélaga, gengur gegn áratuga venjum um samskipti aðila vinnumarkaðarins og skorar miðstjórn ASÍ á ríkissáttasemjara að draga hana til baka.

ASÍ telur heimild til að leggja fram miðlunartillögu vera neyðarúrræði sem takmarkist við að raunverulega hafi öll önnur úrræði verið tæmd og neyðarástand skapast. Viðræðum milli Eflingar stéttarfélags og SA hafi vissulega verið slitið en hins vegar standi nú yfir lýðræðisleg atkvæðagreiðsla um hvort boða skuli til verkfalls. Verkfallsboðun hafi því ekki verið samþykkt af félagsmönnum, verkfall ekki verið boðað og ekkert neyðarástand skapast.

ASÍ telur heimild sáttasemjara jafnframt bundna við að átt hafi sér stað náið samráð við aðila um efni hennar og að hún eigi ekki að leggjast fram án þess að hafa a.m.k. þegjandi samþykki beggja aðila. Hvorugt þessara skilyrða sé uppfyllt.

Tengdar fréttir

  • Vel heppnað þing ASÍ-UNG

    ASÍ-UNG hélt sitt 11. þing föstudaginn 17. október og var…

    Ritstjórn

    20. okt 2025

  • Skýrsla forseta ASÍ 2025 komin út

    Skýrsla forseta fyrir árið 2025 er að venju efnismikil og…

    Arnaldur Grétarsson

    17. okt 2025

  • ASÍ gagnrýnir niðurskurð og óttast aukna verðbólgu

    Alþýðusamband Íslands gerir athugasemdir við áform ríkisstjórnarinnar um niðurskurð eins…

    Ritstjórn

    17. okt 2025