ASÍ styrkir Rauða krossinn um jólin 2022

Höfundur

Ritstjórn

Björg Kjartansdóttir, sviðsstjóri fjáröflunar- og kynningarsviðs, tekur við styrknum frá Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni, forseta ASÍ.

Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti ASÍ, afhenti Rauða krossinum á Íslandi styrk upp á 800 þúsund krónur fyrr í dag. Styrknum verður einkum varið í að efla hjálparsíma Rauða krossins 1717. Björg Kjartansdóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd RKÍ.

Hjálparsími Rauða krossins 1717 og netspjall 1717.is styður við fólk sem á í erfiðleikum, en þar er hægt að leita sér aðstoðar með viðkvæm vandamál af öllum toga. Mikilvægi 1717 er sjaldan meira en einmitt yfir hátíðarnar þegar álagið á Hjálparsímanum er sem mest og er styrkurinn því kærkominn.

Árlega hafa að jafnaði um 15 þúsund erindi borist til 1717, en þeim hefur þó fjölgað umtalsvert síðastliðin ár. Þjálfaðir og reynslumiklir sjálfboðaliðar á öllum aldri svara þeim erindum sem berast. Hjálparsíminn veitir sálfélagslegan stuðning, ráðgjöf og hlustun, auk þess sem þau úrræði sem í boði eru á Íslandi, í hverjum málaflokki, eru kynnt.

Tengdar fréttir

  • ASÍ styrkir Samhjálp um jólin 2025

    Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, afhenti Samhjálp styrk upp á…

    Ritstjórn

    12. des 2025

  • Útgáfufundur Kjaratölfræðinefndar 27. nóv

    Nýjasta skýrsla Kjaratölfræðinefndar verður kynnt í húsakynnum ríkissáttasemjara fimmtudaginn 27. nóvember…

    Ritstjórn

    27. nóv 2025

  • Eftirlitsfulltrúar í námsferð til Helsinki

    Starfsdagar eftirlitsfulltrúa Alþýðusambands Íslands og stéttarfélaganna fóru fram í Helsinki…

    Kristjana Fenger

    7. nóv 2025