Forsetapistill – Hækkum atvinnuleysistryggingar

Höfundur

Drífa Snædal

Grunnatvinnuleysisbætur í dag eru 289.510 kr. á mánuði, það þýðir um 240 þúsund kr. útborgaðar. Að auki fá atvinnuleitendur 11.580 krónur með hverju barni undir 18 ára aldri. Í þrjá mánuði fær fólk tekjutengdar atvinnuleysisbætur (70% af meðaltali heildarlauna) þó að hámarki 456.404 kr. á mánuði.

Þetta er veruleiki sem blasir við allt of mörgum en í júní reiddu 16.165 einstaklingar sig á atvinnuleysisbætur. Reiknað er með að atvinnulausu fólki fjölgi í haust þegar uppsagnafrestur rennur út hjá mörgum. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það að mánaðarlegar skuldbindingar eru jafnan hærri en atvinnuleysisbæturnar; húsnæðiskostnaður, samgöngukostnaður, sími, tryggingar og svo mætti áfram telja.

Að vera atvinnulaus er fjárhagslegt og félagslegt áfall. Áhyggjur af framfærslu, skert sjálfstraust því maður er ekki að „standa sig“, töpuð tengsl við vinnufélaga og það að detta úr rútínu í daglegu lífi reynist mörgum afar erfitt og er ekki hlutskipti sem fólk almennt velur sér. Ég ætla að endurtaka þetta: Að vera atvinnulaus er ekki hlutskipti sem fólk velur sér. Ég mun halda áfram að endurtaka þetta þangað til hugmyndum um annað er útrýmt. Að halda fólki sem missir vinnuna í fátæktargildru er ómannúðlegt. Það er skaðlegt fyrir einstaklinga sem lenda í slíku og býr til meiri samfélagleg og efnahagsleg vandamál en við glímum við nú þegar. Þess vegna er nauðsynlegt að hækka útgreiddar atvinnuleysisbætur og lengja tímabilið þar sem fólk fær tekjutengdar bætur.

Góða helgi,
Drífa

Tengdar fréttir

  • ASÍ styrkir Samhjálp um jólin 2025

    Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, afhenti Samhjálp styrk upp á…

    Ritstjórn

    12. des 2025

  • Útgáfufundur Kjaratölfræðinefndar 27. nóv

    Nýjasta skýrsla Kjaratölfræðinefndar verður kynnt í húsakynnum ríkissáttasemjara fimmtudaginn 27. nóvember…

    Ritstjórn

    27. nóv 2025

  • Eftirlitsfulltrúar í námsferð til Helsinki

    Starfsdagar eftirlitsfulltrúa Alþýðusambands Íslands og stéttarfélaganna fóru fram í Helsinki…

    Kristjana Fenger

    7. nóv 2025