Ályktun miðstjórnar ASÍ um skilyrði fyrir opinberum stuðningi við fyrirtæki

Höfundur

Ritstjórn

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands áréttar að opinber stuðningur til fyrirtækja vegna áhrifa COVID-19 á ekki að vera til þess gerður að fyrirtæki sem ekki þurfa á honum að halda vaði í sameiginlega sjóði samfélagsins að vild. Fram hefur komið að Össur ehf. hafi ákveðið að nýta sér hlutabótaleiðina örskömmu eftir að fyrirtækið greiddi eigendum sínum 1,2 milljarða króna í arð. Slíkt athæfi er ósiðlegt og ætti með réttu að vera ólöglegt.

ASÍ hefur ítrekað kallað eftir því að stjórnvöld setji skýr skilyrði við opinberum stuðningi en slíkar kröfur eru í samræmi við ráðleggingar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og OECD. Meðal skilyrða sem ASÍ hefur kallað eftir er að fyrirtæki hafi nýtt sér eigin bjargir, þau undirgangist skilyrði um að greiða ekki út arð til tveggja ára eftir að þau njóta fyrirgreiðslu og að fyrirtækin eða eigendur þeirra séu ekki skráð í skattaskjólum. Stjórnvöld hafa brugðist þeirri skyldu sinni að tryggja hagsmuni almennings og komandi kynslóða. Nú er mál að linni.

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026