Pistill forseta – Markaðsvæðing ríkisfyrirtækja kemur illa við starfsfólk

Höfundur

Ritstjórn

Póstmenn í Finnlandi hafa staðið í harðri kjaradeilu sem vonandi er að ljúka. Starfsfólk í fólksflutningum fór í samúðarverkfall en það lamaði flugsamgöngur í Finnlandi í heilan dag. Átökin voru ekki hefðbundin kjaradeila heldur fjölluðu um grundvallarmál. Pósturinn var nefninlega gerður að ohf. fyrirtæki í opinberri eigu eins og margar aðrar opinberar stofnanir á tímum markaðsvæðingar. Svo voru stofnuð dótturfélög og starfsfólk sem var ráðið þar inn var undir öðrum kjarasamningum en fólk starfandi hjá Póstinum sjálfum. Deilan núna stóð sem sagt um það á hvaða kjörum og samningum fólk sem starfar hjá Póstinum og dótturfyrirtækjum hans ætti að vera. Stjórnvöld voru þannig komin í undirboð í kjörum með stofnun undirfyrirtækja. Það er ágætt að hafa þetta í huga nú þegar RÚV ætlar að stofna dótturfyrirtæki og endurskipulagning ISAVIA stendur fyrir dyrum. Afleiðingin af markaðsvæðingu ríkisfyrirtækja er sjaldnast til hagsbóta fyrir launafólk sem hjá þeim starfa. Þetta geta starfsmenn fríhafnarinnar á Finnlandsflugvelli staðfest en eftir að mjólkurkýrin var seld eru starfsmennirnir í ráðningarsambandi við alþjóðlegt stórfyrirtæki sem er slétt sama um laun og líðan starfsfólks.

Þetta og margt annað var til umræðu þegar formenn úr Norrænu verkalýðshreyfingunni hittust í vikunni. Mikið var rætt um hugmyndir Evrópusambandsins um tilskipun um lágmarkslaun sem gengur þvert á hefðir í Norður Evrópu þar sem aðilar vinnumarkaðarins semja um kaup og kjör. Þá er einnig rætt um harðari skilyrði fyrir opinberum innkaupum, að þau séu alltaf háð því að varan og þjónustan sé búin til við góð skilyrði og þar sem kjarasamningar eru í gildi.

Norrænir vinir okkar mæta til Íslands á vormánuðum og við munum þá kynna fyrir þeim árangurinn af styttingu vinnuvikunnar en við treystum því að þá verði búið að klára samningana á opinbera markaðnum. Það er ágætt að minna sig á að starfsfólk hjá hinu opinbera, bæði innan ASÍ og BSRB, hafa verið með lausa samninga í átta mánuði. Staðan er orðin miklu meira en óþolandi.

Njótið helgarinnar,
Drífa

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026