Verðlagseftirlit ASÍ á verði

Höfundur

Ritstjórn

Alþýðusambandið beinir þeim tilmælum til fyrirtækja að sýna ábyrgð og halda aftur af verðhækkunum við þær aðstæður sem nú eru uppi og koma þannig í veg fyrir frekari verðbólgu og efnahagslega óvissu sem kemur illa niður bæði á heimilum og fyrirtækjum.

Nokkur umræða hefur verið um að verð á innfluttum vörum fari nú hækkandi vegna þeirrar gengislækkunar sem orðið hefur á síðustu mánuðum og hefur verðlagseftirliti ASÍ einnig borist nokkuð af ábendingum og áhyggjum neytenda þar um. Í því samhengi er nauðsynlegt að beina því til söluaðila að gengislækkun ein og sér leiðir ekki sjálfkrafa til samsvarandi verðhækkana þar sem mun fleiri þættir hafa áhrif á verðlag innfluttra vara.

Í því sérstaka ástandi sem myndast hefur vegna Covid-19 veirunnar, hefur almenningur heldur ekki sömu tækifæri til að versla og gera verðsamanburð og hann hefur venjulega. Samkeppni á markaði minnkar þar sem verslun færist yfir á færri aðila og tækifæri neytenda til að veita aðhald minnkar. Í slíkri stöðu er auðveldara en ella fyrir fyrirtæki að hækka verð og okra á viðskiptavinum.

Fyrirtæki eru hvött til að nýta sér ekki ástandið með þessum hætti heldur laða frekar að sér ný viðskipti og styrkja þau viðskiptasambönd sem fyrir eru með því að sýna samfélagslega ábyrgð og leita allra leiða til að halda verði í lágmarki.

Neytendur eru hvattir til að fylgjast vel með verðlagi, biðja um og passa upp á strimla og láta vita ef þeir verða varir við okur eða óeðlilega miklar verðhækkanir. Það má gera með því að deila inn á facebook hóp verðlagseftirlitsins; Vertu á verði – eftirlit með verðlagi en einnig má senda ábendingu til Samkeppniseftirlitsins í gegnum útfyllingarform á vefsíðu þeirra eða í gegnum netfangið samkeppni@samkeppni.is.

Tengdar fréttir

  • Skattbreytingar tengdar ökutækjum helsta driffjöður verðmælinga

    Vísitala neysluverðs mælist 0,38% hærri nú í janúar en mánuðinn…

    Ritstjórn

    29. jan 2026

  • Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs

    Gosdrykkir og brauðmeti hækkuðu snarpt um áramótin og Bónus og Krónan hækka…

    Ritstjórn

    28. jan 2026

  • Úttekt á fasteignagjöldum 2026 

    Fasteignaskattprósenta lækkaði hjá meirihluta sveitarfélaga milli áranna 2025 og 2026. Hjá rúmlega þriðjungi sveitarfélaga er fasteignaskattasprósenta  óbreytt milli ára  en…

    Ritstjórn

    26. jan 2026