Aðför að verkalýðshreyfingunni víða um heim

Höfundur

Ritstjórn

Síðustu 15 mánuði meðan Covid faraldurinn hefur hrellt heimsbyggðina hefur vinnandi fólk haldið samfélögunum gangandi, það hefur hjúkrað, haldið upp framleiðslu á ýmsum sviðum og þannig forðað því að efnahagslífið legðist í dróma. Þrátt fyrir þetta er sótt að vinnandi fólki víða um heim sem aldrei fyrr.

Í nýrri skýrslu ITUC Global Rights Index 2021 kemur fram að víða um heim standa stjórnvöld og fyrirtæki fyrir grímulausri aðför að stéttarfélögum og samtökum launafólks. Verst er ástandið í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Skýrslan opinberar að öryggi á vinnustöðum hefur víða minnkað og starfsemi verkalýðsfélaga hefur verið takmörkuð í löndum eins og Hvíta-Rússlandi, Kólumbíu, Kambódíu og Myanmar. Þá hefur eftirlit með starfsfólki verið aukið t.d. hjá risafyrirtækinu Amazon og réttindi verið skert eða þau afnumin með lagabreytingum stjórnvalda eins og í Honduras, Indlandi, Indónesíu, Slóvakíu og Úrúgvæ.

Í skýrslu ITUC hefur 149 löndum verið raðað upp eftir því hvernig réttindum verkafólks er háttað (Ísland er í hópi 11 ríkja sem fær bestu einkunn).

Meðal niðurstaðna er:

– 87% ríkja brjóta verkafallsrétt launafólks
– 79% ríkja brjóta rétt verkafólks til að gera kjarasamninga
– 74% ríkja hindra verkafólk í að stofna eða ganga í verkalýðsfélög
– Fjölda ríkja sem hindrar skráningu stéttarfélaga jókst úr 89 árið 2020 í 109 árið 2021
– Tvö ný ríki komust á listann árið 2021 þar sem réttindi og aðstæður verkafólks eru verst (Hvíta-Rússland og Myanmar)
– Verkafólk í 45 löndum er útsett fyrir ofbeldi í vinnunni
– Verkafólk í 65% landa hefur lítinn eða engan lagalegan rétt
– Verkafólk í 68 löndum upplifði tilefnislausar handtökur
– Félagar í verkalýðsfélögum voru myrtir í sex löndum; Brasilíu, Kólumbíu, Gvatemala, Myanmar, Nígeríu og á Fillipseyjum.

Lesa má skýrslu ITUC hér.

Tengdar fréttir

  • ASÍ styrkir Samhjálp um páska

    ASÍ styrkir Samhjálp um 400 þúsund krónur nú í aðdraganda…

    Arnaldur Grétarsson

    15. apr 2025

    Kaffistofa Samhjálpar og merki Samhjálpar
  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2025

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Arnaldur Grétarsson

    8. apr 2025

    Eðvarð Sigurðsson
  • Engar tryggingar í frumvarpi um verð á raforku til almennings

    Stjórnvöld taki ekki tillit til sérstöðu raforkumála á Íslandi Alþýðusamband…

    Ritstjórn

    26. mar 2025