Agnieszka Ewa Ziólkowska tekur við sem formaður Eflingar

Höfundur

Ritstjórn

Agnieszka Ewa Ziólkowska, sem var varaformaður Eflingar í formannstíð Sólveigar Önnu Jónsdóttur, hefur tekið við sem formaður félagsins. Eins og kunnugt er sagði Sólveig Anna af sér sem formaður Eflingar þann 1. nóvember. Á stjórnarfundi Eflingar 4. nóvember var afsögn fráfarandi formanns afgreidd og í framhaldinu samþykkt að Agnieszka tæki við embætti formanns. Stjórnar- og formannskjör í Eflingu fer svo fram í mars á næsta ári.

Á fundi stjórnar Eflingar var ennfremur lögð áhersla á að tryggja órofa starfsemi félagins. Efling býr að ríkri sögu sem nær aftur til upphafs verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi. Hjá Eflingu vinnur stór hópur fólks sem þjónustar félagsmenn á hverjum degi. Félagið veitir upplýsingar og aðstoð vegna launaútreikninga og kjaramála, það veitir námsstyrki og leigir félagsmönnum orlofshús. Efling rekur öflugan sjúkrasjóð þar sem m.a. er hægt að sækja greiðslur vegna langvarandi veikinda en einnig ýmsa aðra styrki sem snúa að heilsueflingu. Efling veitir lögfræðiaðstoð vegna ágreinings við atvinnurekendur og sinnir umfangsmiklu fræðslustarfi. Þessi starfsemi verður eftir sem áður kjarninn í starfi Eflingar með hagsmuni félagsmanna alltaf í forgrunni.

Í yfirlýsingu stjórnar er áréttað á að félagsins bíður það mikla verkefni undirbúa næstu kjarasamningsviðræður en samningar eru lausir í lok næsta árs. Í þessu verkefni mun Efling áfram vera sterkur málsvari verkafólks. Stjórn Eflingar vill þakka Sólveigu Önnu Jónsdóttur og Viðari Þorsteinssyni fyrir þeirra störf í þágu félagsins á þeim tæplega fjórum árum sem þau hafa verið í forystu. Framlag þeirra í þágu láglaunafólks, kvenna og fólks af erlendum uppruna á Íslandi verður seint fullþakkað.

Stjórn Eflingar mun nú einbeita sér að þeim verkefnum sem henni ber að sinna. Formaður muni starfa með skrifstofunni að því að greiða úr þeim vandamálum sem hafa komið upp í starfsemi félagsins. Þrátt fyrir þann ágreining sem ratað hefur í fjölmiðla eru stjórn og starfsfólk einhuga í því að tryggja þjónustu við félagsmenn Eflingar, segir ennfremur í yfirlýsingu stjórnar félagsins.

Tengdar fréttir

  • ASÍ styrkir Samhjálp um páska

    ASÍ styrkir Samhjálp um 400 þúsund krónur nú í aðdraganda…

    Arnaldur Grétarsson

    15. apr 2025

    Kaffistofa Samhjálpar og merki Samhjálpar
  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2025

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Arnaldur Grétarsson

    8. apr 2025

    Eðvarð Sigurðsson
  • Engar tryggingar í frumvarpi um verð á raforku til almennings

    Stjórnvöld taki ekki tillit til sérstöðu raforkumála á Íslandi Alþýðusamband…

    Ritstjórn

    26. mar 2025