Í nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ á jólabókum var Bónus oftast með lægsta verðið, í 50 tilvikum en Forlagið næst oftast, í 25 tilvikum. Penninn Eymundsson var oftast með hæsta verðið, í 43 tilvikum. Forlagið átti flestar bækur af þeim sem könnunin náði til, 80 bókatitla af 81 og Penninn Eymundsson næst flesta, 79
Í Nettó voru engar verðmerkingar á bókum til staðar á sölustað og gat verðtökufulltrúi verðlagseftirlitsins því ekki tekið niður verð. Þetta samræmist ekki reglum Neytendastofu um verðmerkingar sem kveða á um að verðmerkja skuli vöru hvar sem hún er til sýnis og að auðvelt eigi að vera að sjá verð vöru og þjónustu á sölustað.
Neytendur ættu að hafa hugfast að verð á algengum bókatitlum breytast oft ört í verslunum á þessum árstíma.
1.500-3000 kr. munur á hæsta og lægsta verði á bókatitlum í helmingi tilfella
Oft var mikill verðmunur á bókatitlum en í um helmingi tilfella eða 40 af 81 var yfir 1.500 kr. munur var á hæsta og lægsta verði á bókatitlum. Þannig var 1.500-2000 kr. munur á hæsta og lægsta verði á 23 bókatitlum en 2.000-2.500 kr. munur á 13 bókatitlum. Í fjórum tilvikum var yfir 2.500 kr. munur á hæsta og lægsta verði.
Bónus var oftast með lægsta verðið á bókatitlum, í 50 tilvikum en Forlagið næst oftast, í 25 tilvikum. Forlagið var með lægsta verðið á öllum þýddum skáldverkum en Bónus með lægsta verðið í öðrum flokkum ef bækurnar fengust í versluninni. Penninn Eymundsson var oftast með hæsta verðið, í 43 tilvikum, Salka í 16 tilvikum og Forlagið í 13 tilvikum.
Forlagið átti flestar bækur af þeim sem könnunin náði til, 80 bókatitla af 81 og Penninn Eymundsson næst flesta, 79. Fæstar bækur voru til hjá Heimkaup, 38 af 81 en næst fæstar hjá Bónus þar sem 50 titlar fengust.
Allt að 2.700 kr. munur á íslenskum skáldverkum
Af íslenskum skáldverkum var mest 60% eða 2.701 kr. munur á hæsta og lægsta verði á bókinni Hungur e. Stefán Mána. Hæst var verðið í Heimkaup, 7.199 kr. en lægst í Bónus, 4.498 kr. Þá var 49% munur á hæsta og lægsta verði af bókinni Opið haf e. Einar Kárason, 45% á bókinni Drepsvart hraun e. Lilju Sigurðardóttur og 45% eða 2.392 kr. munur á bókinni Játning eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Almennt var minnstur verðmunur á þýddum skáldverkum eða á bilinu 17-21%.
Í krónum talið var mestur munur á hæsta og lægsta verði á bókinni Bjóluætt sem var ritstýrt af Sigurði Hermundarsyni, 4.109 kr. Hæst var verðið í Pennanum Eymundssyni 19.999 kr. en lægst í Forlaginu, 15.980 kr.
56% verðmunur á vinsælum barna- og unglingabókum
Af íslenskum barna- og unglingabókum var mest 56% munur á hæsta og lægsta verði á þremur bókum. Í krónum talið var mestur munur á hæsta og lægsta verði á bókinni Fagurt galaði fuglinn sá, 2.501 kr. eða 56%. Þá var 56% eða 1801 kr. munur á hæsta og lægsta verði á bókinni Orri Óstöðvandi – Draumur Möggu Messi e. Bjarna Fritzson og jafn mikill munur var á bókinni Salka – Tímaflakkið eftir sama höfund. Í báðum tilvikum var verðið lægst í Bónus en hæst í Pennanum. Af þýddum barna- og unglingabókum var mest 61% munur á hæsta og lægsta verði á barnabókinni Hva eftir vinsæla barnabókahöfundinn David Walliams. Lægst var verðið Bónus, 3.098 kr. en hæst í Pennanum 4.999 kr.
Um verðkönnunina
Könnunin var gerð samtímis í eftirtöldum verslunum: Forlaginu , Nettó, Hagkaupum, Bónus, Heimkaup.is, Pennanum Eymundssyni og Sölku.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.