Samningurinn undirritaður. Frá vinstri Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður, Eyrún B. Valsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ. og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ.

Alþýðusamband Íslands afhendir vörsluútgáfu til Þjóðskjalasafns Íslands

Höfundur

Ritstjórn

Í vikunni undirrituðu Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og Þjóðskjalasafn Íslands (ÞÍ) samning um skil á einni af vörsluútgáfum ASÍ til safnsins. Með samningnum er formfest framhald skila ASÍ og samstarf við Þjóðskjalasafn um varðveislu mikilvægra heimilda um starfsemi sambandsins og sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar.

ASÍ hefur um áratuga skeið skilað skjölum sínum til Þjóðskjalasafns Íslands með það að markmiði að tryggja faglega langtímavarðveislu, öryggi gagna og aðgengi að sögulegum heimildum.

Með skilunum tryggir ASÍ að skjöl og gögn sem hafa sögulegt og rannsóknarlegt gildi verði varðveitt við viðeigandi aðstæður til framtíðar hjá Þjóðskjalasafni Íslands. Þar verða þau hluti af opinberri skjalavörslu landsins og aðgengileg til rannsókna og fræðistarfa samkvæmt lögum, reglum og þessum samningi.

Skjölin tengjast jafnframt Sögusafni verkalýðshreyfingarinnar sem starfar í umsjón Þjóðskjalasafns Íslands í dag. Safnið var stofnað árið 1973 og hefur það hlutverk að efla söfnun, varðveislu og rannsóknir á heimildum um sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar.

ASÍ hefur einnig unnið að því að tryggja varðveislu annars efnis úr starfsemi sambandsins. Ljósmyndasafn ASÍ var afhent Þjóðminjasafni Íslands árið 2024 og hafa um fjöldi eldri mynda þegar verið gerðar aðgengilegar almenningi á vefnum sarpur.is.

Skilin eru mikilvægur áfangi í varðveislu sögu ASÍ og þeirra fjölmörgu verkefna sem sambandið hefur komið að í starfsemi sinni.

ASÍ fagnar því að geta unnið með Þjóðskjalasafni Íslands og Þjóðminjasafni Íslands að því að tryggja varðveislu þessara heimilda til framtíðar.

Mynd tekin við undirritun samningsins. Frá vinstri Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður, Eyrún B. Valsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ, og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ.

Hlekkur á vef Þjóðskjalasafns Íslands: https://island.is/s/thjodskjalasafn

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026