Óskað eftir tilnefningum vegna Kuðungsins

Höfundur

Ritstjórn

Vinnur þú á vinnustað sem er til fyrirmyndar í umhverfismálum? Hefur fyrirtækið/stofnunin sem þú starfar hjá komið að nýsköpun í umhverfismálum eða ráðist í viðamiklar aðgerðir til að draga úr umhverfisfótspori?

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2025.

Tilnefningarflokkarnir eru tveir, stærri og minni fyrirtæki eða stofnanir.

Tillögur skulu berast umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu eigi síðar en 16. mars nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið urn@urn.is eða með pósti í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Í fyrra hlutu fyrirtækin Pure North og BM Vallá viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf í umhverfismálum.

Nánari upplýsingar um tilnefningar má nálgast á vefsíðu Stjórnarráðsins: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/03/10/Frestur-til-ad-skila-inn-tilnefningum-til-Kudungsins-framlengdur-til-16.-mars/

Tengdar fréttir

  • Áformuð gjaldtaka í lagareldi óskýr og vanhugsuð

    Mynd: Bob Brewer, Unsplash Alþýðusamband Íslands (ASÍ) gerir verulegar athugasemdir…

    Ritstjórn

    15. apr 2026

  • Margvíslegar athugasemdir launafólks við frumvarp um loftslagsmál

    ASÍ, BHM, BSRB og KÍ fagna því að í drögum…

    Ritstjórn

    1. sep 2025

  • Gallað frumvarp um breytt raforkulög  

    Frumvarp til laga um um breytingar á raforkulögum og lögum…

    Ritstjórn

    5. mar 2025