Ályktun miðstjórnar ASÍ um launahækkun æðstu embættismanna

Höfundur

Ritstjórn

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) telur 5,6% launahækkun forseta, ráðherra, þingmanna og æðstu embættismanna um næstu mánaðamót algerlega úr takti við þá baráttu sem almenningur í landinu stendur í til að ná niður verðbólgu. Á almennum markaði var samið um 3,5% launahækkun til alls þorra launafólks. Lægstu laun voru hækkuð sérstaklega um 5,6% þar sem þau eru skammarlega lág. Lægstu laun eru um 450 þús. á mánuði og 5,6% hækkun á þau gera kr. 25.200.

Þingfararkaup sem núna er rúmar 1,6 milljónir króna á mánuði hækkar um 85 þúsund krónur. Laun forseta Íslands nálgast fimm milljónir króna og ráðherrar eru sömuleiðis hálaunamenn.

Miðstjórn ASÍ vekur athygli á að stjórnmálamenn í þessum hátekjuhópi halda því ítrekað fram að smávægilegar hækkanir almennra launataxta séu gífurleg ógn við stöðugleika, velferð og framtíð íslensku þjóðarinnar.

Gangi þessar hækkanir eftir sannast enn á ný að hin pólitíska yfirstétt deilir ekki kjörum með alþýðu manna í landinu. Sama hefur reynst hvaða aðferð notuð er til að ákvarða laun þessa fólks, því tekst jafnan að tryggja sér kjör umfram þau sem skömmtuð eru almenningi.

Þetta er birtingarmynd viðvarandi siðferðisskekkju sem er hin raunverulega ógn við stöðugleika og velferð þjóðarinnar.

Tengdar fréttir

  • Ályktun miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um viðskiptabann gagnvart Ísrael

    Almenningur í Palestínu hefur mátt þola ólýsanlegar þjáningar í tengslum…

    Ritstjórn

    21. maí 2025

  • Miðstjórn ASÍ styður breytingar á veiðigjöldum 

    Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur samþykkt eftirfarandi ályktun: „Miðstjórn Alþýðusambands Íslands…

    Ritstjórn

    3. apr 2025

  • Ný ríkisstjórn fordæmi glæpaverk Ísraela

    Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur samþykkt eftirfarandi ályktun: Miðstjórn Alþýðusambands Íslands…

    Ritstjórn

    10. jan 2025