Miðstjórn ASÍ lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála

Höfundur

Ritstjórn

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum í dag, 18. febrúar 2026:

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af ástandi efnahagsmála.
Langvarandi hávaxtastefna hefur valdið ómældum skaða en ekki skilað árangri sem skyldi og
það er tímabært að endurskoða aðferðafræðina. Miðstjórn hafnar fullyrðingum Seðlabankans
um að orsakir verðbólgunnar megi rekja til þeirra kjarasamninga sem gerðir voru á almennum
vinnumarkaði. Launafólk undirgekkst kjarasamninga sem kváðu á um launahækkanir undir
verðbólgu gegn því að stjórnvöld myndu halda aftur af gjaldskrárhækkunum og fyrirtæki aftur
af verðhækkunum. Þær hækkanir sem hafa komið til á verðbólgunni undanfarna mánuði má
hins vegar rekja beint til aukinna gjalda hins opinbera og mikilla verðhækkana fyrirtækja, sem
aftur skila sum auknum hagnaði á verðbólgutímum. Mælt launaskrið á sér ekki rætur í
kjarasamningsbundnum launahækkunum á almennum markaði og það er ábyrgðarhluti af
Seðlabankanum að þyrla upp ryki með slíkum fullyrðingum.


Miðstjórn lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri stöðu sem nú er að teiknast upp í hagkerfinu.
Hætta er á að forsendur kjarasamninga geti brostið í haust. Stjórnvöld hafa ekki staðið við þau
fyrirheit sem gerð voru í tengslum við kjarasamninga og fyrirtæki hafa ekki gert það heldur.
Þótt húsnæðisverðhækkanir séu á undanhaldi þá glittir ekki í langþráðan stöðugleika á
húsnæðismarkaði. Áform núverandi ríkisstjórnar um aðgerðir í húsnæðismálum eru fjarri því
að mæta vandanum og miðstjórn kallar eftir því að stjórnvöld rísi undir ábyrgð og taki
húsnæðismálin föstum tökum. Húsnæðismálin eru stærsta kjaramálið.


Miðstjórn telur vonbrigði að stjórnvöldum og Seðlabanka hafi ekki tekist að stuðla að
verðstöðugleika í takt við markmið kjarasamninga. Tilkostnaður hávaxtastefnunnar hefur á
sama tímabili verið mikill þar sem þungar byrðar hafa verið lagðar á yngri og skuldsettari hópa
á meðan eignafólk og eldri kynslóðir hafa ýmist verið í skjóli eða beinlínis hagnast á ástandinu.
Hækkandi atvinnuleysi og minnkandi hagvöxtur samhliða þrálátri verðbólgu er mikið
áhyggjuefni sem kallar á nýja nálgun, bæði af hálfu Seðlabankans og stjórnvalda. Mikið er í
húfi, bæði fyrir fólk og fyrirtæki, og miðstjórn kallar eftir réttri greiningu vandans og raunhæfum
tillögum að lausnum.

Tengdar fréttir

  • ASÍ gagnrýnir ráðherraræði í lagareldi

    Ljóssmynd/Ed Wingate Alþýðusamband Íslands gagnrýnir harðlega að í frumvarpi til…

    Ritstjórn

    20. apr 2026

  • Áformuð gjaldtaka í lagareldi óskýr og vanhugsuð

    Mynd: Bob Brewer, Unsplash Alþýðusamband Íslands (ASÍ) gerir verulegar athugasemdir…

    Ritstjórn

    15. apr 2026

  • Ríkisstjórnin leitast við að veikja réttindi launafólks í vaxandi atvinnuleysi 

    Atvinnuleysi fer nú vaxandi samkvæmt öllum helstu mælikvörðum, sem bendir til minni spennu…

    Ritstjórn

    26. mar 2026