Ályktun miðstjórnar ASÍ – Verjum réttindi og kjör

Höfundur

Ritstjórn

Sterk verkalýðshreyfing er merki um heilbrigðan og vel skipulagðan vinnumarkað. Á samdráttar- og krepputímum er vegið að kjörum og réttindum vinnandi fólks. Þá reynir á samstöðu verkalýðshreyfingarinnar sem aldrei fyrr. Mikill fjöldi félaga okkar er að missa vinnu eða tapa réttindum og taka á sig kjaraskerðingar. Þessa félaga okkar þurfum við að verja með sameinuðu afli okkar.

Það áfall sem á okkur dynur afhjúpar veikleika á vinnumarkaði sem endurspeglast í slæmri réttarstöðu launafólks í ótryggum og réttlitlum ráðningarsamböndum. Formlegt ráðningarsamband ásamt aðild að stéttarfélagi og réttindi skv. kjarasamningum er besta vörn sem launamaður á vinnumarkaði getur fengið. Á það reynir núna.

Alþýðusambandið hefur á undanförnum vikum unnið með stjórnvöldum og samtökum atvinnurekenda að aðgerðum sem ætlað er að minnka höggið af niðursveiflunni á heimil og fyrirtæki. En það þarf að gera betur. Atvinnuleysisbætur þurfa að hækka og það þarf að tryggja fé til virkra vinnumarkaðsaðgerða. Það þarf að tryggja afkomuöryggi hópa sem ekki falla undir lög um hlutabætur eða um laun í sóttkví. Þar eiga í hlut viðkvæmir hópar sem þarf að verja betur. Það þarf að tryggja húsnæðisöryggi. Það þarf að nýta skattkerfið með markvissari hætti til tekjujöfnunar og verja grunnstoðir velferðarkerfisins. Þá verður að tryggja að verðlag haldist stöðugt og kjör skerðist ekki vegna verðbólgu. Styrkur og mikilvægi opinbera heilbrigðiskerfisins ætti jafnframt að vera öllum ljós við þær aðstæður sem nú ríkja.

Samtök atvinnulífsins gagnrýna ASÍ fyrir að gefa ekki eftir kauphækkanir og lífeyrisréttindi við ríkjandi aðstæður og bera saman við stöðuna eftir hrunið 2008. Það er bæði rangt og villandi. Það hefur aldrei staðið á samninganefnd ASÍ að eiga samtal við atvinnurekendur og stjórnvöld um sameiginlegar lausnir. Þeir afarkostir sem Samtök atvinnulífsins stilltu upp gagnvart samninganefnd ASÍ var hins vegar hafnað af miklum meirihluta nefndarinnar eftir breitt samráð við bakland innan verkalýðshreyfingarinnar. Ábyrgðina er ekki hægt að setja á launafólk sem nú þegar hefur orðið fyrir miklum búsifjum. Alþýðusamband Íslands mun standa vörð um þær vinnumarkaðsaðgerðir sem ákveðnar hafa verið og gerir sömu kröfur til atvinnurekenda og samtaka þeirra.

Sterk verkalýðshreyfing er mikilvæg á öllum tímum en aldrei eins og í kreppu. Þá reynir á samstöðu og skýra sýn. Á slíkum stundum er mikilvægt að sjá heildarmyndina. Verja réttindi og kjör og standa dyggan vörð um velferðarkerfið. Við erum sterkari saman.

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026