ASÍ og BSRB halda opinn fund um almenna íbúðakerfið

Höfundur

Ritstjórn

ASÍ og BSRB halda opinn fund um almenna íbúðakerfið og ábyrgð sveitarfélaganna í húsnæðisuppbyggingu í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Fundurinn fer fram þriðjudaginn28. apríl kl. 9.00 – 10.30 í Eddu og í streym. Á fundinum verður m.a. kynnt ný greining samtakanna um félagslegt húsnæði og þróun almenna íbúðakerfisins.

Verkalýðshreyfingin hefur í gegnum tíðina lagt ríka áherslu á húsnæðisöryggi launafólks og verið virkur þátttakandi í uppbyggingu og umræðu um húsnæðismál. Samtökin eiga húsnæðissjálfseignarstofnunina Bjarg íbúðafélag fyrir félaga í aðildarfélögum sínum. Bjarg er burðarás í almenna íbúðakerfinu og hefur frá 2016 byggt yfir 1.000 íbúðir fyrir tekjulágt launafólk. 

Hvar á láglaunafólk að búaÁbyr sveitarfélaganna í húsnæðisuppbyggingu

Opinn fundur ASÍ og BSRB í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga

Þriðjudaginn 28. apríl kl. 9.00-10.30 í Eddu, Arnfinnsgötu 5

Boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8.30

Streymt verður frá fundinum hér

Dagskrá:

8:30​ Húsið opnar 

9:00​ Opnunarávarp – Finnbjörn A Hermannsson, forseti ASÍ 

9:05​ Saga og tilurð almenna íbúðakerfisins og Bjargs íbúðafélags – Myndband 

9:10​ Kynning á nýrri greiningu um félagslegt húsnæði og almenna íbúðakerfið 

Róbert Farestveit hagfræðingur ASÍ og Jana Víglundsdóttir hagfræðingur BSRB

9:30​ Saga íbúa í Bjargi – Myndband 

9:35 ​Húsnæðisstefnu stjórnvalda og hlutverk sveitarfélaga  

Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS 

9:50 ​Saga íbúa í Bjargi – Myndband 

9:55 ​Pallborðsumræður

Dagur B Eggertsson, formaður aðgerðahóps stjórnvalda í húsnæðismálum

Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga 

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og stjórnarmaður í Bjargi

Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags

10:30 ​Fundarslit

Fundarstjóri er Brynja Þorgeirsdóttir

Tengdar fréttir

  • Úttekt á fasteignagjöldum 2026 

    Fasteignaskattprósenta lækkaði hjá meirihluta sveitarfélaga milli áranna 2025 og 2026. Hjá rúmlega þriðjungi sveitarfélaga er fasteignaskattasprósenta  óbreytt milli ára  en…

    Ritstjórn

    26. jan 2026

  • ASÍ telur lög um skammtímaleigu húsnæðis til ferðamanna ganga of

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) telur fyrirliggjandi frumvarp um breytingu á lögum…

    Ritstjórn

    20. okt 2025

  • Alþýðusambandið styður almenna skráningarskyldu leigusamninga

    Alþýðusambands Íslands (ASÍ)  fagnar  fyrirhuguðum breytingum á lögum þar sem…

    Ritstjórn

    17. okt 2025