Fulltrúar ASÍ og stéttarfélaga sóttu í mars námskeið í Helsinki um leiðir til að greina misneytingu aðflutts launafólks (e. Solutions for Identifying Migrant Worker Exploitation).
Námskeiðið var haldið af NIVA í samstarfi við finnsku rannsóknarstofnunina HEUNI og komu þar saman sérfræðingar frá stéttarfélögum, vinnueftirliti, lögreglu og félagasamtökum sem þjónusta þolendur.
Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ, flutti fyrirlestur á námskeiðinu um baráttuna gegn misneytingu launafólks á Íslandi. Hún fjallaði meðal annars um hlutverk stéttarfélaga í baráttunni gegn misneytingu og formbundið samstarf aðila vinnumarkaðarins við opinberar stofnanir.
Á námskeiðinu var einnig fjallað um hvernig Norðurlöndin takast á við misneytingu launafólks með ólíkum hætti og að erfitt sé að tala um eitt sameiginlegt „norrænt módel“ í því samhengi.
Í Finnlandi og Noregi er það opinbert vinnueftirlit sem hefur eftirlit með kjörum launafólks en í Danmörku og Svíþjóð sinna stéttarfélög því hlutverki. Á Íslandi sjá stéttarfélög um eftirlit og framfylgd kjarasamninga, líkt og í Danmörku og Svíþjóð, en auk þess er formbundið samstarf við opinberar eftirlitsstofnanir.
Jafnframt var fjallað um aðferðir í vinnustaðaeftirliti, viðtalstækni og helstu vísbendingar um misneytingu á vinnustöðum, svo eitthvað sé nefnt.
Nánar má lesa um námskeiðið á vef HEUNI: https://heuni.fi/-/heuni-and-niva-training-on-identifying-labour-exploitation#248076fa





