ASÍ og Isavia taka höndum saman um upplýsingagjöf til erlends launafólks

Höfundur

Ritstjórn

ASÍ og Isavia hafa gert með sér samstarfssamning um miðlun upplýsinga til erlends launafólks um íslenskan vinnumarkað, kjarasamninga, réttindi og skyldur. Drífa Snædal, forseti ASÍ, og Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, undirrituðu samstarfssamning þess efnis í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli í dag.

Markmiðið með samningnum og samstarfi ASÍ og Isavia er að stuðla að heilbrigðum vinnumarkaði á Íslandi, þar sem allir njóti kjara og annarra réttinda í samræmi við kjarasamninga og lög og þar sem launafólki er ekki mismunað á grundvelli þjóðernis. Þetta er liður í baráttunni fyrir heilbrigðum vinnumarkaði, að kjarasamningar séu virtir og fólk af erlendum uppruna sem kemur til landsins að vinna fái upplýsingar um réttindi sín.

Til að ná þessu markmiði verða skjáir í flugstöðinni notaðir til að miðla upplýsingum til farþega. Þá verður prentað kynningarefni gert aðgengilegt á nokkrum stöðum – þar á meðal í töskumóttökusal flugstöðvarinnar.
Verkefnið byggir m.a. á samfélagslegri ábyrgð aðila eins og hún birtist í heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um góða atvinnu og hagvöxt og um frið og réttlæti.

„Íslenskur vinnumarkaður er skipulagður og launafólk á skjól í stéttarfélögum,“ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ. „Þessu er ekki til að heilsa alls staðar í veröldinni og því mikilvægt að koma þeim upplýsingum vel og skilmerkilega á framfæri við launafólk hvert það getur leitað að stuðningi og skjóli. Flugstöð Leifs Eiríkssonar er sá staður þar sem fólk kemst fyrst í kynni við landið og því er afar ánægjulegt að hægt sé að koma upplýsingum á framfæri þar, í bæklingum og á skjáhvílum.“

„Isavia er stór vinnuveitandi, Keflavíkurflugvöllur er stór vinnustaður og því til viðbótar þá er okkur umhugað um heilbrigði vinnumarkaðs á Íslandi.,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Þess vegna tökum við þátt í því verkefni að auðvelda erlendu launafólki að nálgast réttar upplýsingar um leið og það fer í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar, stærstu gáttina til landsins. Þannig fær það tækifæri til að sækja upplýsingar um réttindi sín og skyldur öllum til hagsbóta.“

Tengdar fréttir

  • ASÍ styrkir Samhjálp um jólin 2025

    Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, afhenti Samhjálp styrk upp á…

    Ritstjórn

    12. des 2025

  • Útgáfufundur Kjaratölfræðinefndar 27. nóv

    Nýjasta skýrsla Kjaratölfræðinefndar verður kynnt í húsakynnum ríkissáttasemjara fimmtudaginn 27. nóvember…

    Ritstjórn

    27. nóv 2025

  • Eftirlitsfulltrúar í námsferð til Helsinki

    Starfsdagar eftirlitsfulltrúa Alþýðusambands Íslands og stéttarfélaganna fóru fram í Helsinki…

    Kristjana Fenger

    7. nóv 2025