ASÍ-UNG kallar eftir aðgerðum í loftslagsmálum

Höfundur

Ritstjórn

ASÍ-UNG kallar eftir aðgerðum í loftslagsmálum í tengslum við alþjóðlega loftslagsaðgerðaviku, 20. – 27. september 2019

Áskorun frá ASÍ-UNG og Evrópusambandi verkalýðsfélaga/ETUC

ASÍ-UNG skorar á aðildarfélög ASÍ til að grípa til aðgerða vegna hamfarahlýnunar í tengslum við alþjóðlegu viku loftslagsaðgerða frá 20. – 27. september. Heimsátakið er skipulagt vegna umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldinn verður í New York þann 23. september.

Á þingi ETUC fyrr á þessu ári í Vín var samþykkt ályktun um mikilvægi þess að virkja stéttarfélög og félagsmenn til aðgerða næstu fjögur árin vegna hamfarahlýnunar af mannavöldum. Í aðgerðaáætlun ETUC 2019-2023 skuldbinda samtökin sig til að vinna markvisst að róttækum loftslagsaðgerðum.

Á undanförnum misserum höfum við meðal annars upplifað fordæmalausa skógarelda í Amazon og Síberíu, bráðnun jökla á norðurslóðum, banvæna monsúnvinda á Indlandi og hitabylgjur um alla Evrópu. Þetta hefur allt haft mikil áhrif á líf og störf fólks.

Allt síðasta ár hefur ungt fólk vakið athygli á þeirri vá sem hamfarahlýnun af mannavöldum er með vikulegum loftlagsverkföllum þar sem krafist er aukinna aðgerða stjórnvalda í loftlagsmálum.

Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna svarar ákalli unga fólksins og hefur boðað leiðtoga heims til loftlagsráðstefnu í New York. Af því tilefni hvetur unglingahreyfingin til loftlagsverkfalla og vitundarvakningar vikuna 20. – 27. september. Lesa má nánar um átakið hér.  

Við hvetjum aðildarfélög til þess að vera virk í baráttunni gegn hamfarahlýnun og standa vörð um félagslegt réttlæti (e. Just Transition) í þeim breytingum sem fram undan eru á vinnumarkaði.

ASÍ-UNG hvetur öll aðildarfélög ASÍ til þess að taka virkan þátt í aðgerðavikunni 20.-27. september. Loftslagsverkfall – Ísland hefur meðal annars boðað til loftlagsverkfalls á föstudaginn kemur, 20. september. Á Facebook síðu þeirra má svo einnig sjá lista fyrir fjölda annarra viðburða sem skipulagðir hafa verið í tengslum við aðgerðavikuna.

Sýnum samstöðu gegn hamfarahlýnun af mannavöldum!

Stjórn ASÍ-UNG

Tengdar fréttir

  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026

  • Alþýðusamband Íslands afhendir vörsluútgáfu til Þjóðskjalasafns Íslands

    Í vikunni undirrituðu Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og Þjóðskjalasafn Íslands (ÞÍ)…

    Ritstjórn

    12. mar 2026

    Samningurinn undirritaður. Frá vinstri Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður, Eyrún B. Valsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ. og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ.
  • Kauptaxtaauki tekur gildi 1. apríl

    Launa- og forsendunefnd kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, sem skipuð er…

    Ritstjórn

    10. mar 2026