Áskorun forseta ASÍ til sveitarfélaga á landinu

Höfundur

Ritstjórn

Í tilefni þess að nú liggur fyrir fasteignamat fyrir næsta ár ætlast Alþýðusamband Íslands til þess að sveitarfélög standi við yfirlýsingar gefnar í tengslum við kjarasamninga í apríl og lækki álagsprósentur fasteignaskattsins vegna ársins 2020. Þannig má koma í veg fyrir að hækkun fasteignamats skili sér sjálfkrafa í skattahækkun til almennings í gegnum hærri álagningu.

Launafólk á almennum vinnumarkaði gekk til samninga og samþykkti þá með því fororði að hið opinbera legðist á árarnar með aðilum vinnumarkaðarins við að halda aftur af útgjaldaaukningu heimila landsins. Stoðirnar undir þeim samningum voru yfirlýsingar stjórnvalda, þar með talin yfirlýsing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Nú þegar hefur það sveitarfélag þar sem fasteignamat hækkar mest, Akranes, lýst því yfir að skatthlutfallið verði lækkað þannig að ekki komi til skattahækkunar á heimili. Við fögnum því og hvetjum önnur sveitarfélög til að axla ábyrgð og standa með launafólki til að markmið nýgerðra kjarasamninga um aukinn kaupmátt, lága verðbólgu og lægri vexti og nái fram að ganga. ASÍ mun í framhaldinu fylgjast vel með gjaldskrárbreytingum sveitarfélaganna og viðbrögðum þeirra við hækkun fasteignamats.

Tengdar fréttir

  • Eftirlitsfulltrúar í námsferð til Helsinki

    Starfsdagar eftirlitsfulltrúa Alþýðusambands Íslands og stéttarfélaganna fóru fram í Helsinki…

    Kristjana Fenger

    7. nóv 2025

  • Vel heppnað þing ASÍ-UNG

    ASÍ-UNG hélt sitt 11. þing föstudaginn 17. október og var…

    Ritstjórn

    20. okt 2025

  • Skýrsla forseta ASÍ 2025 komin út

    Skýrsla forseta fyrir árið 2025 er að venju efnismikil og…

    Arnaldur Grétarsson

    17. okt 2025