Forseti ASÍ ræðir við forystufólk flokkanna – myndbönd

Höfundur

Ritstjórn

Í haust verður kosið til Alþingis en nýs þings bíður það risavaxna verkefni að byggja upp samfélagið eftir Covid kreppuna. Hvernig til tekst við þá uppbyggingu skiptir launafólk og alla Íslendinga miklu máli. Alþýðusamband Íslands birti í byrjun maí ákall til frambjóðenda til Alþingis um að byggja samfélagið upp með sjálfbærni, jöfnuð og jafnrétti að leiðarljósi. Því fylgir mikil ábyrgð að varða veginn frá faraldri til farsældar.

Einn liður í því að byggja samtalsbrú frá verkalýðshreyfingunni yfir til stjórnmálaflokkanna eru viðtöl sem Drífa Snædal, forseti ASÍ, mun taka við formenn stjórnmálaflokkanna á næstu vikum. Fyrsta viðtalið var við Loga Einarsson formann Samfylkingarinnar og í dag ræddi hún  við Gunnar Smára Egilsson frá Sósíalistaflokknum.

Smellið hér til að sjá viðtölin

Tengdar fréttir

  • Heimilt að takmarka starfsemi erlendra rútufyrirtækja

    Evrópudómstóllinn kvað þann 16. október 2025 upp dóm í máli C-482/23 þar…

    Ritstjórn

    30. jan 2026

  • Rótgróinn ójöfnuður hamlar félagslegu réttlæti

    13. 01.26 Þrátt fyrir miklar framfarir í menntun, verulegan árangur…

    Ritstjórn

    13. jan 2026

  • ASÍ styrkir Samhjálp um jólin 2025

    Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, afhenti Samhjálp styrk upp á…

    Ritstjórn

    12. des 2025