Forseti ASÍ ræðir við forystufólk stjórnmálaflokkanna

Höfundur

Ritstjórn

Í haust verður kosið til Alþingis en nýs þings bíður það risavaxna verkefni að byggja upp samfélagið eftir Covid kreppuna. Hvernig til tekst við þá uppbyggingu skiptir launafólk og alla Íslendinga miklu máli. Alþýðusamband Íslands birti í byrjun maí ákall til frambjóðenda til Alþingis um að byggja samfélagið upp með sjálfbærni, jöfnuð og jafnrétti að leiðarljósi. Því fylgir mikil ábyrgð að varða veginn frá faraldri til farsældar.

Einn liður í því að byggja samtalsbrú frá verkalýðshreyfingunni yfir til stjórnmálaflokkanna eru viðtöl sem Drífa Snædal, forseti ASÍ, mun taka við formenn stjórnmálaflokkanna á næstu vikum. Fyrsta viðtalið var við Loga Einarsson formann Samfylkingarinnar, næst ræddi hún við Gunnar Smára Egilsson frá Sósíalistaflokknum, þriðja í röðinni var Halldóra Mogensen þingflokksformaður Pírata og nýjasta viðtalið er við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur formann Viðreisnar.

Smelltu hér til að sjá viðtölin.

Tengdar fréttir

  • Vel heppnað þing ASÍ-UNG

    ASÍ-UNG hélt sitt 11. þing föstudaginn 17. október og var…

    Ritstjórn

    20. okt 2025

  • Skýrsla forseta ASÍ 2025 komin út

    Skýrsla forseta fyrir árið 2025 er að venju efnismikil og…

    Arnaldur Grétarsson

    17. okt 2025

  • ASÍ gagnrýnir niðurskurð og óttast aukna verðbólgu

    Alþýðusamband Íslands gerir athugasemdir við áform ríkisstjórnarinnar um niðurskurð eins…

    Ritstjórn

    17. okt 2025