Föst störf hornsteinn norrænnar velferðar

Höfundur

Ritstjórn

Norræna verkalýðshreyfingin leggur þunga áherslu á að fastráðningar í full störf verði hin almenna regla í heilbrigðis- og umönnunargeiranum á Norðurlöndum. Konur, innflytjendur og fólk með litla eða enga formlega menntun eru þeir hópar sem helst verða fyrir barðinu á skammtímaráðningum og óöruggri vinnu í heilbrigðis- og umönnunarþjónustu. Þetta er ein meginniðurstaða nýrrar skýrslu sem SAMAK, samstarfsnefnd alþýðusambanda og jafnaðarmannaflokka á Norðurlöndum, hefur sent frá sér.

Skýrslan nefnist „Fullt starf á Norðurlöndum – Aukin gæði og trygg vinna í föstum, fullum störfum í heilbrigðis- og umönnunarþjónustu“. Fram kemur að vinnuaðstæður og -kjör í heilbrigðis- og umönnunarstörfum eru um margt ólíkar á Norðurlöndum. Það sama á við um þær áskoranir sem Norðurlöndin standa frammi fyrir. Mikilvægt sé því að leita lausna sem henta í hverju landi.

Hlutastörf algengust á Íslandi

Í skýrslunni kemur fram að hlutfall fólks í hlutastörfum í umönnunar- og heilbrigðisgeiranum er hæst á Íslandi. Þvert á það sem á við um Danmörku, Noreg og Svíþjóð fer þetta hlutfall vaxandi hér á landi. Þá kemur og fram að í öllum löndunum eru konur í meirihluta þeirra sem eru í hlutastörfum og er hlutfallið einnig hæst á Íslandi.

Í yfirlýsingu sem leiðtogar alþýðusambanda og jafnaðarmannaflokka á Norðurlöndum hafa birt í tilefni skýrslunnar segir:

„Norrænu jafnaðarflokkarnir og verkalýðshreyfing Norðurlanda líta svo á að full, föst störf séu mikilvægur hornsteinn í norrænu velferðarlíkaninu. Þessari skýrslu fylgja pólitísk meðmæli sem við leggjum til að verði fylgt eftir í hverju landi fyrir sig:

  1. Tilboð um fullt starf á að fara framar á forgangslistann hjá verkalýðshreyfingunni og flokkunum sem sjálfsagt mál fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og umönnunarþjónustu.
  2. Opinber fjármögnun heilbrigðis- og umönnunarþjónustu þarf að vera fullnægjandi, og sums staðar þarf að styrkja stöðu fullra starfa á vinnumarkaðnum og í samfélaginu.
  3. Takmarka þarf eignarhald einkaaðila í heilbrigðis- og umönnunarþjónustu.
  4. Áhrif starfsfólks og notenda þjónustunnar á starfsemina á að þróa áfram.”

Skýrslu SAMAK má nálgast hér:

Tengdar fréttir

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026

  • Alþýðusamband Íslands afhendir vörsluútgáfu til Þjóðskjalasafns Íslands

    Í vikunni undirrituðu Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og Þjóðskjalasafn Íslands (ÞÍ)…

    Ritstjórn

    12. mar 2026

    Samningurinn undirritaður. Frá vinstri Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður, Eyrún B. Valsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ. og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ.