Ný greining hagsviðs ASÍ, á bensínverðum, bendir til þess að framlegðarhlutur olíufélaga hafi hækkað verulega frá árinu 2022, og aukist að raunvirði. Þó gætir viðsnúnings á síðustu mánuðum og mæld framlegð leitar í átt að langtímameðaltali.
Greiningin nær yfir tímabilið 2017–2026 og byggir á mánaðarmeðaltölum yfir lægstu verð olíufélaga hverju sinni. Framlegðarhluturinn er skilgreindur sem mismunur á dæluverði bensíns, að frádregnum opinberum gjöldum, og heimsmarkaðsverði eldsneytis í krónum. Þannig má draga fram það sem stendur eftir milli heimsmarkaðsverðs og dæluverðs og gefur það skýra vísbendingu um hlut olíufélaga í bensínverði, sér í lagi þegar litið er til þróunar á föstu verðlagi.
Skýr breyting frá 2022
Greiningin sýnir að framlegðarhluturinn var tiltölulega lágur á árunum 2020 og 2021, eða á bilinu 20–30 krónur á lítra á föstu verðlagi.1 Frá árinu 2022 varð hins vegar skýr breyting. Á seinni hluta ársins jókst framlegðarhluturinn hratt og hefur síðan verið umfram langtímameðal (36,7 ISK), með tveimur undantekningum.
Stærsti hluti þeirrar miklu sveiflu sem sést í krónum talið eftir 2022 endurspeglar því samspil breytinga í verðlagi og gengi, en jafnframt má greina raunaukningu í framlegð, sem hefur haldist yfir fyrra stigi. Þannig bendir þróunin til þess að framlegðin hafi ekki aðeins hækkað tímabundið heldur færst upp á hærra og varanlegra jafnvægisstig. Á síðustu mánuðum hefur framlegðarhluturinn þó lækkað frá þeim toppum sem sáust eftir 2022. Sú þróun er neytendum í hag og bendir til þess að bilið milli heimsmarkaðsverðs og dæluverðs hafi dregist saman. Þrátt fyrir það er framlegðarhluturinn enn hærri en hann var almennt á árunum fyrir 2022 og því er ekki tilefni til að gefa afslátt af þeirri hækkun sem varð á tímabilinu í heild.
Í samræmi við fyrri greiningar ASÍ og þróun framlegðar
Niðurstöðurnar eru í samræmi við fyrri greiningar ASÍ á eldsneytismarkaði. 2 Ítrekað hefur verið bent á að lækkanir á heimsmarkaði og styrking krónu skili sér ekki að fullu til neytenda, á meðan verðhækkanir ganga hraðar í gegn. Niðurstöðurnar styðja þetta mat og sýna að framlegðarhlutur olíufélaga hefur verið hærri frá 2022 en áður þekktist, þrátt fyrir hagfelldari þróun að undanförnu.
Þegar framlegðin er sett í samhengi við heimsmarkaðsverð kemur sama mynstur fram. Hlutfallsleg framlegð lækkaði verulega á árunum 2020–2021 en hefur hækkað á ný frá 2022 og verið hærri en áður var algengt. Þetta bendir til þess að aukningin endurspegli ekki aðeins breytingar í krónum talið heldur einnig hærra hlutfall undirliggjandi innkaupsverðs.
Mikilvægt er að hafa í huga að framlegðarhluturinn jafngildir ekki hreinum hagnaði olíufélaga heldur nær einnig til kostnaðarliða á borð við flutning, dreifingu og rekstur. Þrátt fyrir það gefur hann skýra mynd af þróun þess bils sem myndast milli alþjóðlegs verðs og dæluverðs og er því gagnlegur mælikvarði á verðþróun og markaðsaðstæður.
Meginniðurstaðan er því skýr. Þrátt fyrir að þróun síðustu mánaða hafi verið hagfelldari fyrir neytendur hefur framlegðarhlutur olíufélaga hækkað frá árinu 2022, bæði í krónum talið og sem hlutfall af heimsmarkaðsverði, og verið hærri en áður þekktist um tíma.
- Verðlag miðar við janúar 2017.
- Sjá: https://vinnan.is/laekkun-a-oliuverdi-ekki-ad-skila-ser-til-neytenda/, https://vinnan.is/gengisahrifa-gaetir-ekki-a-islenskum-bensindaelum/, https://vinnan.is/ny-grein-i-visbendingu-kilometragjald-og-samkeppni-a-eldsneytismarkadi/ & https://vinnan.is/nytt-kilometragjald-dyrara-ad-keyra-sparneytnar-bifreidar/
Heimildir
- Innlend verð: Daglegar athuganir frá Gasvaktinni niður á einstakar bensínstöðvar. Sjá Gasvaktin. (e.d.). Gögn um eldsneytisverð á Íslandi [Gagnasafn]. Sótt 18. mars 2026 af https://github.com/gasvaktin/gasvaktin
- Heimsmarkaðsverð: Verð á bensíni til afhendingar í New York höfn. Sjá U.S. Energy Information Administration. (e.d.). Weekly U.S. Product Supplied of Finished Motor Gasoline (psw11) [Gagnasafn]. Orkustofnun Bandaríkjanna. Sótt 18. mars 2026 af https://ir.eia.gov/wpsr/psw11.xls
- Gengisupplýsingar Seðlabanki Íslands. (e.d.). Gengi: Bandaríkjadalur (daglegt miðgengi) [Gagnasafn]. Sótt 18. mars 2026 af https://www.cb.is/statistics/official-exchange-rate/https://www.cb.is/statistics/official-exchange-rate/
- Opinber gjöld:
- Yfirlit yfir opinber gjöld til ársins 2024 eru fengin frá Heimildinni. (2024). Excel-skrá fylgir með grein: Margt bendir til þess að bensínverð geti farið að hækka skarpt [Gagnaskjal]. Sótt af 8. ágúst 2025 af https://app.calculatorstudio.co/download/b4beac45-e51e-4d32-9a23-698fa4567b2e/3981e558-085d-42d1-aa0c-ecbfb2d58fcb
- Gögn fyrir árið 2025 er fengin frá Skatturinn. (e.d.) Skattar og gjöld. Sótt 18. mars 2026 af https://www.skatturinn.is/atvinnurekstur/skattar-og-gjold/




