Mörg sveitarfélög styrkja tómstundastarf barna með svokölluðum frístundastyrkjum eða hvatapeningum sem er yfirleitt ákveðin peningaupphæð á ári sem fylgir hverju barni og er ætluð til niðurgreiðslu á tómstundastarfi. Af 20 sveitarfélögum sem úttekt verðlagseftirlitsins nær til er Kópavogsbær með hæstu frístundastyrkina, 56.000 kr. á ári. Fjarðabyggð er með lægstu styrkina, 10.000 kr. á ári en sveitarfélagið bauð ekki upp á frístundastyrki árið 2020. Grindavíkurbær og Ísafjarðarbær bjóða ekki upp á frístundastyrki. Úttektin nær eingöngu til frístundastyrkja og ekki er tekið tillit til annars konar stuðnings sveitarfélaganna við íþrótta– og tómstundastarf.
Frá árinu 2020 hafa frístundastyrkir hækkað hlutfallslega mest hjá sveitarfélaginu Skagafirði, um 60% eða 15.000 kr. en styrkirnir hækkuðu um 15.000 kr. eða 43% hjá Vestmannaeyjabæ.
Reykjavíkurborg hefur gefið út að frístundastyrkir hjá sveitarfélaginu muni hækka úr 50.000 kr. á ári í 75.000 kr. á ári um áramót. Hveragerði og Suðurnesjabær bjóða upp á frístundastyrki fyrir lengsta aldursbilið 0-18 ára, en Akureyri og Fjarðabyggð fyrir stysta aldursbilið, 6-17 ára gömul börn og ungmenni.
Frístundstyrkir hækkað mest hjá Skagafirði og Vestmannaeyjabæ
Upphæð frístundastyrkja hefur hækkað í 8 af 20 sveitarfélögum frá árinu 2020 þegar síðasta úttekt á frístundastyrkjum var gerð. Frístundastyrkir hafa hækkað mest hjá Skagafirði, um 60% eða um 15.000 kr. Styrkirnir hækkuðu um 46% eða 5.500 kr. hjá Norðurþingi og um 43% eða 15.000 kr. hjá Vestmannaeyjabæ. Engir frístundastyrkir voru í boði árið 2020 hjá Fjarðarbyggð en þeir eru 10.000 kr. núna og þá hækkuðu styrkirnir um 10.000 kr. eða 29% hjá bæði Árborg og Reykjanesbæ.
Reykjavíkurborg hefur samþykkt að hækka frístundastyrk úr 50.000 kr. í 75.000 kr. á ári eða um 50% og mun breytingin taka gildi 1. janúar 2023. Ekki er vitað til þess að önnur sveitarfélög hafi gefið út að frístundstyrkir verði hækkaðir.
Hæstu frístundastyrkirnir í Kópavogi en lægstu styrkirnir í Fjarðabyggð
Af 20 stærstu sveitarfélögum landsins sem úttektin nær til er Kópavogur með hæstu frístundastyrkina, 56.000 kr. á ári fyrir hvert barn. Styrkurinn gildir fyrir börn á aldrinum 5-18 ára. Næst hæstu styrkirnir eru hjá Hafnarfjarðarbæ 54.000 kr. á hvert barn en styrknum er skipt niður á mánuði þannig að einungis hluti styrksins er laus til notkunar í mánuði hverjum. Mosfellsbær greiðir 52.000 kr. í tómstundastyrk fyrir fyrsta og annað barn en styrkurinn hækkar upp í 60.000 kr. fyrir þriðja barn. Styrkirnir hækka einnig hjá Akranesi fyrir annað og þriðja barn.
Sveitarfélögin Reykjavík, Seltjarnarnes, Garðabær og Vestmannaeyjar greiða öll styrki að upphæð 50.000 kr. á ári. Aldursbilið sem styrkirnir gilda fyrir er lengst hjá Vestmannaeyjabæ, 2-18 ára en 5-18 ára hjá Seltjarnarnesbæ og Garðabæ og 6-18 ára hjá Reykjavíkurborg.
Lægsta upphæð frístundastyrks er hjá Fjarðabyggð, 10.000 kr. fyrir hvert barn á aldrinum 6-17 ára. Næst lægstu styrkirnir eru hjá Norðurþingi, 17.500 kr. á ári fyrir börn á aldrinum 2-18 ára og hjá Borgarbyggð nema styrkirnir 20.000 kr. á ári fyrir 6-18 ára.
Misjafnt er fyrir hvaða aldursbil styrkirnir gilda fyrir en Hveragerði og Suðurnesjabær bjóða upp á styrki fyrir 0-18 ára og Norðurþing og Vestmannaeyjar frá 2-18 ára. Styrkirnir gilda fyrir stysta aldursbilið hjá Akranesbæ, Reykjanesbæ, Reykjavíkurborg, Mosfellsbæ, Hafnarfjarðarbæ og Borgarbyggð, fyrir 6-18 ára. Grindavíkurbær og Ísafjarðarbær bjóða ekki upp á frístundastyrki.
Frístundastyrkir jafna tækifæri barna til tómstundaiðkunar
Rannsóknir sýna að þátttaka í tómstundastarfi hefur áhrif á vellíðan barna og unglinga auk þess sem sýnt hefur verið fram á forvarnargildi tómstundastarfs og er það því hagur samfélagsins að börn hafi aðgang að slíku starfi. Tómstundir, hvort sem um er að ræða íþróttir, tónlistarnám eða annað, gegna því bæði því hlutverki að vera afþreying fyrir börn og unglinga auk þess að hafa menntunar- og forvarnargildi. Tómstundir geta verið dýrar og fjölskyldur eru í misjafnri stöðu til að greiða fyrir þær. Misjafnt er hvernig sveitarfélög styðja við íþrótta- og tómstundastarf en stuðningur sem miðar að því að lækka kostnað foreldra vegna tómstundaiðkunar barna stuðlar að því að því að börn geti tekið þátt í tómstundastarfi óháð efnahag og félagslegum aðstæðum. Slíkur stuðningur jafnar þannig tækifæri barna til tómstundaiðkunar.
Um úttektina
Úttekt þessi nær eingöngu til frístundastyrkja sem foreldrar geta ráðstafað til að niðurgreiða tómstundir barna. Ekki er tekið tillit til annars konar stuðnings við tómstundastarf barna í formi stuðnings við íþróttafélög, lægra verðs á námskeiðum, ókeypis aksturs eða akstursstyrkja til foreldra sem keyra börn sín langan veg í tómstundir. Samanburðurinn nær til 20 fjölmennustu sveitarfélaga landsins.