Search
Close this search box.
Search
Close this search box.
1. maí ganga

Hátíðarhöld á 1. maí 2024

Reykjavík

  • Safnast saman á Skólavörðuholti kl. 13:00
  • Kröfugangan leggur af stað klukkan 13:30. Lúðrasveit Verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila í göngunni og á Ingólfstorgi.
  • Útifundur á Ingólfstorgi Kl. 14:00. Fundarstjóri er Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar.
  • Ræðu flytja Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis.
  • Bríet og Úlfur Úlfur flytja tónlist og í lok fundarins syngur fundarfólk og tónlistarfólk.

VR er með fjölskylduhlaup á Klambratúni Kl. 11:30

  • Sylvía Erla úr Bestu lögum barnanna og Íþróttaálfurinn hita upp fyrir hlaupið sem er 1,5 km leið í kringum túnið. Þátttaka er ókeypis og allir þátttakendur fá verðlaunapening.
  • VÆB og ANÍTA skemmta okkur og Sirkus Íslands verður á svæðinu. Boðið upp á grillaðar pylsur, bulsur, gos og safa.
  • VR verður með sitt árlega verkalýðskaffi fyrir félagsfólk í anddyri Laugardalshallar kl. 14:30 að loknum útifundi á Ingólfstorgi.

Efling heldur fjölskylduhátíð í Kolaportinu á milli klukkan 15:00 og 17:00. VR verður með sitt árlega verkalýðskaffi fyrir félagsfólk í anddyri Laugardalshallar kl. 14:30 að loknum útifundi á Ingólfstorgi.

Félagsmönnum aðildarfélaga hjá Húsi Fagfélaganna: 2F (Rafiðnaðarsamband Íslands, VM, Byggiðn – Félag byggingarmanna, FIT (Félag iðn- og tæknigreina), MATVÍS og Samiðn) er boðið í 1. maí kaffi að kröfugöngu lokinni en kaffið hefst kl 14:00 að stórhöfða 29-31. (gengið inn Grafvarvogsmegin)

Félagsmönnum aðildarfélaga BSRB, gestum og gangandi er boðið í 1. maí kaffi að göngunni lokinni að Grettisgötu 89.

Hafnarfjörður

Samstöðu- og baráttutónleikar Verkalýðsfélagsins Hlífar og STH (Starfsmannafélags Hafnarfjarðar) verða haldnir í Bæjarbíói, kl. 14:00.

  • Fram koma JóiPé og Króli, Eyþór Ingi og Jóhanna Guðrún. Boðið verður upp á veitingar á staðnum.

Akranes

Verkalýðsfélag Akraness, Sameyki, VR, FIT, Kennarasamband Íslands og Sjúkraliðafélag Íslands standa fyrir dagskrá á hátíðar- og baráttudegi verkafólks 1. Maí.

  • Safnast verður saman við skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness að Þjóðbraut 1,  kl. 14 og genginn hringur að bæjarskrifstofum Akraness þar sem hátíðardagsrá hefst í sal eldri borgara.
  • Björg Bjarnadóttir framkvæmdarstjóri SGS flytur hátíðarræðu, fjöldasöngur og  Kvennakórinn Ymur syngur nokkur lög.
  • Boðið verður upp á kaffi og kökur að hætti kórsins.

Stykkishólmur

Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá á Fosshótel Stykkishólmi.

  • Dagskráin hefst kl. 13:30
  • Kynnir: Þóra Sonja Helgadóttir, Kjölur
  • Ræðumaður: Saga Kjartansdóttir, verkefnastjóri vinnustaðaeftirlits ASÍ
  • Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Stykkishólms
  • Tónlistaratriði, Salka Sól og Karl Ogleirsson
  • Kaffiveitingar

Grundarfjörður

Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá í Samkomuhúsinu.

  • Dagskráin hefst kl. 14:30
  • Kynnir: Garðar Svansson, Sameyki
  • Ræðumaður: Saga Kjartansdóttir, verkefnastjóri vinnustaðaeftirlits ASÍ
  • Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Grundarfjarðar
  • Tónlistaratriði, Salka Sól og Karl Ogleirsson
  • Kaffiveitingar

Snæfellsbær

Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá í Klifi.

  • Dagskráin hefst kl. 15:30
  • Kynnir: Þóra Sonja Helgadóttir, Kjölur
  • Ræðumaður: Saga Kjartansdóttir, verkefnastjóri vinnustaðaeftirlits ASÍ
  • Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Snæfellsbæjar
  • Tónlistaratriði, Salka Sól og Karl Ogleirsson
  • Kaffiveitingar

Borgarnes

Stéttarfélag Vesturlands og Kjölur standa fyrir hátíðar- og baráttufundi sem hefst í Hjálmakletti, Borgarnesi kl. 14:30.

  • Ávarp, atriði frá Tónlistarskólanum í Borgarnesi, Bjarni Freyr Gunnarsson tekur lagið. Ræðu dagsins flytur Aleksandra Leonardsdóttir. Einnig koma fram Barnakórarnir og Jón Jónsson.
  • Félögin bjóða samkomugestum upp á kaffihlaðborð að fundi loknum. Foreldrar og nemendur 9.bekkjar í Grunnskólans í Borgarnesi sjá um veitingar.
  • 12:00 bíó fyrir yngstu kynslóðina í Óðali – popp og svali í boði

Búðardalur

Kjölur Stéttarfélag, Stéttarfélag Vesturlands og Sameyki standa saman að samkomu í Dalabúð kl. 13:30. 

  • Ávarp dagsins flytur Signý Jóhannesdóttir.
  • Jón Jónsson og Kórinn Hljómbrot koma fram.

Ísafjörður

Lagt verður af stað frá Alþýðuhúsinu kl. 14:00 með Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar í fararbroddi

  • Hátíðardagskrá í Edinborg
  • Ræðumaður dagsins: Bergvin Eyþórsson
  • Tónlistaratriði: Fagranesið tekur nokkur lög og barnakór Tónlistarskólans 3. til 4. bekkur syngur.
  • Pistill dagsins: Lísbet Harðar Ólafardóttir
  • Maraþonmenn tala lagið
  • Slysavarnardeildin Iðunn sér um kaffiveitingar í Guðmundarbúð að lokinni dagskrá í Edinborgarhúsinu.
  • Bíó fyrir börn í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og kl. 16:00 – 10 líf
  • Bíó fyrir eldri í Ísafjarðarbíói kl. 20:00 – The Fall Guy

Patreksfjörður

Bíó fyrir börn kl. 16:00 – 10 líf

Flateyri

Dagskrá hefst á Bryggjukaffi á Flateyri kl. 15:00.

  • Verkalýðsfélagið Skjöldur 90 ára, Hljómsveitin ÆFING 55 ára. Sögur, myndir, tónar. BIBarinn og Siggi Björns leiða dagskrá.


Bolungarvík

Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur býður í kaffi og meðlæti kl. 14:00.

  • Unglingastig Grunnskóla Bolungarvíkur sér um kaffiveitingar. Tónlistarskóli Bolungarvíkur og Karlakóreinn Ernir skemmta.

Akureyri

Kröfuganga og hátíðardagskrá á Akureyri miðvikudaginn 1. maí

  • 13:45 – Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
  • 14:00 – Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar

Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu

  • Kynnir er Anna Júlíusdóttir, formaður Einingar-Iðju
  • Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna, Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM
  • Hátíðarræða, Finnbjörn A. Hermannsson – forseti ASÍ
  • Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr söngleiknum um Gosa
  • Ívar Helgason tekur lagið
  • Kaffihressing að dagskrá lokinni
  • Pylsur, safi og andlitsmálning fyrir börnin.

Fjallabyggð
Boðið verður upp á létta dagskrá í sal félaganna að Eyrargötu 24b Siglufirði miðvikudaginn 1. maí kl. 14:30 – 17:00

  • Ávarp frá 1. maí nefnd stéttarfélaganna og kaffiveitingar

Húsavík

Stéttarfélögin standa fyrir hátíðarhöldum 1. maí á Fosshótel Húsavík. Hátíðin hefst kl. 14:00. Boðið verður upp á veglegt kaffihlaðborð frá hótelinu, hátíðarræða, auk þess sem heimamenn í bland við góða gesti munu sjá um að skemmta gefstum með mögnuðum tónlistaratriðum.

  • Ruth Ragnarsdóttir syngur Maístjörnuna við undirleik Ísaks M. Aðalsteinssonar
  • Hátíðarræða: Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags
  • Tónsmiðjan spilar og syngur nokkur lög
  • Nemendur Tónlistarskóla Húsavíkur flytja tónlist
  • Ávarp: Ósk Helgadóttir, varaformaður Framsýnar stéttarfélags
  • Geirmundarsveifla: Flytjendur Jónína Björt Gunnarsdóttir, Guðrún Arngrímsdóttir, Maja Eir Kristinsdóttir, Pétur Valgarð Pétursson og Grétar Örvarsson

Vopnafjörður

Félagsheimilinu Miklagarði – Gunnar Smári Guðmundsson flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00. 

Borgarfjörður eystri

Álfheimum – Aleksandra Radovanovic  flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00. 

Seyðisfjörður

Félagsheimilinu Herðubreið – Sverrir Mar Albertsson flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00. 

Egilsstaðir

Hótel Héraði – Nikulás Daði Arnarson flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00. 

Reyðarfjörður

Heiðarbær – Ágúst Ívar Vilhjálmsson  flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00. 

Eskifjörður

Melbær- Sverrir Kristján Einarsson flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00. 

Neskaupstaður

Hótel Hildibrand- Sunna Júlía Þórðardóttir flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00. 

Fáskrúðsfjörður

Glaðheimum –Jón Kristinn Arngrímsson flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00. 

Stöðvarfjörður

Grunnskólanum Stöðvarfirði – Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00. 

Breiðdalsvík

Hamar kaffihús – Bára Kolbrún Pétursdóttir flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00. 

Djúpivogur

Hótel Framtíð – Guðrún Aradóttir flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00. 

Hornafjörður

Heppa restaurant- Sigurður Einar Sigurðsson flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00. 

Selfoss

Kröfuganga hefst klukkan 11:00.
Lúðrasveit Selfoss leiðir gönguna frá Austurvegi 56 að Hótel Selfoss þar sem að dagskrá og skemmtun fer fram.

  • Kynnir er Jónas Yngvi Ásgrímsson, frá VR
  • Ræðumaður verður Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
  • Annar ræðumaður verður Klaudia  Joanna Figlarska, nemandi í ML
  • Fríða Hansen ásamt Alexander Frey taka lagið.
  • Afrekshópur dansakademíunar kemur fram.
  • Fimleikadeild UMFS sér um andlitsmálun.
  • Kaffi, kökur og veitingar.


Vestmannaeyjar

1. maí verður verður haldinn hátíðlegur í AKÓGES

  • Húsið opnar kl. 14:00 og verður tekið á móti börnum á öllum aldri með andlitsmálningu og blöðrum.
  • Skólahljómsveit Vestur- og Miðbæjar ásamt Skólalúðrasveit Vestmannaeyja sjá um tónlistaratriðin.
  • Ávarp, kaffi, vöfflur og fleira á boðstólnum.

Reykjanesbær

Stéttarfélögin á Suðurnesjum bjóða félags- fólki og öðrum íbúum svæðisins á baráttu- fund í Stapa, Hljómahöll kl.14:00 til 16:00. Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.

  • Mummi Hermanns leikur ljúfa tóna. Guðbjörg Krismundsdóttir,
  • formaður VSFK, setur dagskrá. Ræðumaður dagsins er Hilmar Harðarson, formaður FIT.
  • Bjartmar Guðlaugsson tekur nokkra klassíska slagara,
  • Guðlaugur Ómar frá Leikfélagi Keflavíkur, Karlakór Keflavíkur slær botninn í dagskrána.
  • Að venju bjóða stéttarfélögin upp á ókeypis bíósýningu fyrir börnin kl. 13.00 í Sambíóinu við Hafnargötu

Blönduós

Kaffiveitingar verða að venju í Félagsheimilinu á Blönduósi. Dagskráin hefst kl. 15:00                                                                       

  • Boðið verður upp á frábæra tónlist og söng.
  • Ræðumaður dagsins: Sigurey A. Ólafsdóttir, formaður Stéttarfélags Samstöðu.
  • Afþreying fyrir börn, Kvenfélag Svínavatnshrepps sér um glæsilegar veitingar.

Grindavík

Dagskrá fellur niður sökum hamfaranna í Grindavík.

Tengdar fréttir