Úrslitastund er runninn upp í baráttunni gegn hamfarahlýnun af mannavöldum. Það þarf að bregðast við strax. Framtíð okkar veltur á því! Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) hvetur því til aðgerða og vitundarvakningar í loftslagsmálum miðvikudaginn 26. júní og skorar á þig og þinn vinnustað að taka þátt. Atvinnulífið þarf að axla ábyrgð og allir vinnustaðir að leggja sitt að mörkum.
Frá árinu 2005 höfum við upplifað 9 af 10 heitustu árum frá upphafi mælinga. Nú þegar eru 83 milljónir manna á flótta vegna hamfarahlýnunar og búsifja tengdum loftslagsbreytingum. Til viðbótar eru 72 milljónir starfa í heiminum í hættu vegna hlýnunar. Viðbragðsaðgerðir þurfa að líta dagsins ljós, frá atvinnulífinu, stjórnvöldum og almenningi.
Hér má nálgast verkfærakistu sem styðjast má við í umræðunni á þínum vinnustað um hamafarahlýnun af mannavöldum.
Samfélagsmiðlar #cPOW #ClimateProofOurWork #26June
Hvernig tek ég þátt?
- Taktu þátt!
Leggðu þitt af mörkum með því að skrá þig og þinn vinnustað!
- júní – Vektu vinnufélagana til umhugsunar!
Orð eru til alls fyrst!
Nýttu samfélagsmiðla, innra net, tölvupósta og kaffistofuspjall til að deila efni með samstarfsfólki og vekja umræður.
- Segðu frá!
Deildu á samfélagsmiðlum til að sýna að þú og þinn vinnustaður taki þátt í Heimsátaki gegn hamfarahlýnun af mannavöldum.
#cPOW #ClimateProofOurWork #26June
Hefur hamfarahlýnun af mannavöldum áhrif á þitt starf og vinnustað? Sendu tölvupóst þar sem sögum þátttakenda, á heimsvísu, verður safnað saman. Segðu frá því vinnustaðnum, hvort og hvernig hlýnun hefur áhrif á þitt starf og vinnuumhverfi. Ekki er verra ef mynd fylgir með! campaigning@ituc-csi.org
Með því að senda myndir og myndbönd til ITUC samþykkir þú að þau geti verið birt á samfélagsmiðlum hreyfingarinnar.