Ískaldar kveðjur til starfsmanna Heilbrigðisstofnunnar Suðurlands

Höfundur

Ritstjórn

Enn og aftur eru það starfsmenn í ræstingu og nú einnig í þvottahúsi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) sem verða fyrir barðinu á uppsögnum vegna „hagræðingar“. Afl starfsgreinafélag, Báran, stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag og Verkalýðsfélag Suðurlands mótmæla fyrirhuguðum uppsögnum á ræstingafólki og starfsmönnum í þvottahúsi hjá HSU. Réttindi og kjör þeirra starfsmanna sem munu verða ráðnir í þessi störf munu verða lakari en hjá þeim starfsmönnum sem hafa gengt þeim til þessa. Starfsmönnum var tilkynnt í framhaldinu að ekki væri óskað eftir starfsumsóknum frá þeim hjá nýjum atvinnurekanda!

Á vef ríkiskaupa þann 19.02 2021 kemur fram að árangursríkt útboð HSU á ræstingu hafi átt sér stað, þar sem kemur fram að kostnaður er langt undir kostnaðaráætlun.

Hljómar þessi frétt eins og dæmalaus siguryfirlýsing um að tekist hafi að lækka launakostnað starfsfólks, sem er á algjörum lágmarkstöxtum við erfiða vinnu. Þetta eru kaldar kveðjur frá yfirstjórn stofnunarinnar og vægast sagt lítilsvirðing við störf þessa hóps sem hefur ekki síður verið í framlínunni sérstaklega á tímum þessarar farsóttar.

Stéttarfélögin skora á stjórn stofnunarinnar að hætta við fyrirhugaðar uppsagnir og um leið aðför að þessum störfum. Sýnum störfum jafna virðingu.

F.h. stéttarfélaganna

Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir
Formaður Afls

Arnar G. Hjaltalín
Formaður Drífanda

Halldóra Sigr. Sveinsdóttir
Formaður Bárunnar

Guðrún Elín Pálsdóttir
Formaður Verkalýðsfélags Suðurlands

Tengdar fréttir

  • Heimilt að takmarka starfsemi erlendra rútufyrirtækja

    Evrópudómstóllinn kvað þann 16. október 2025 upp dóm í máli C-482/23 þar…

    Ritstjórn

    30. jan 2026

  • Rótgróinn ójöfnuður hamlar félagslegu réttlæti

    13. 01.26 Þrátt fyrir miklar framfarir í menntun, verulegan árangur…

    Ritstjórn

    13. jan 2026

  • ASÍ styrkir Samhjálp um jólin 2025

    Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, afhenti Samhjálp styrk upp á…

    Ritstjórn

    12. des 2025