Kauptaxtaauki tekur gildi 1. apríl

Höfundur

Ritstjórn

Launa- og forsendunefnd kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, sem skipuð er fulltrúum frá ASÍ og SA, fundaði mánudaginn 9. mars. Á fundinum var úrskurðað að kauptaxtaauki virkjist frá og með 1. apríl næstkomandi. Kauptaxtaaukinn felur í sér að kauptaxtar kjarasamninga hækki um 0,06% frá og með 1. apríl 2026 og skýrist af því að launavísitala á almennum markaði hækkaði umfram taxtahækkanir viðmiðunartaxtans á öðru ári stöðugleikasamningsins.

Nefndinni, sem starfar samkvæmt kjarasamningum aðila á árunum 2024-2028, ber að fylgjast með framvindu efnahagslífs og mögulegum áhrifum á markmið samninga um minnkun verðbólgu og lækkun vaxta. Nefndinni ber jafnframt að leggja mat á samningsforsendur, næst í september 2026. Þá skal taka afstöðu til eftirfarandi forsendna: Að 12 mánaða verðbólga í ágúst 2026 mælist ekki yfir 4,7%. Forsenda þessi um verðlag telst þó hafa staðist ef verðbólga á 6 mánaða tímabilinu frá mars – ágúst 2026 verður 4,4% eða lægri miðað við árshraða.

Launa- og forsendunefnd hefur einnig úrskurðað um framleiðniauka vegna ársins 2025 en þróun framleiðni á samningstímanum gefur ekki tilefni til greiðslu hans.

Verðbólguhorfur hafa versnað

Meginmarkmið kjarasamninganna er að stuðla að minnkun verðbólgu og lækkun vaxta. Verðbólga mældist um 8% þegar undirbúningur kjarasamninga hófst haustið 2023. Verðbólga hjaðnaði á fyrsta ári samningsins, og var hún komin niður í 4,2% í febrúar 2025 og vaxtalækkunarferlið var hafið. Undanfarið ár hefur hins vegar orðið viðsnúningur, verðbólga hefur aukist á ný. Hún mælist nú 5,2% og þar af 4,5% án áhrifa húsnæðiskostnaðar. Verðhækkanir mælast á breiðum grunni og óvissa um efnahagshorfur hefur aukist.

Dekkri verðbólguhorfur og alvarleg staða í alþjóðamálum auka hættuna á að verðlagsforsendur kjarasamninga muni bresta.

Tengdar fréttir

  • 5,2% verðbólga í apríl

    Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,81% milli mars og apríl. Verðlag…

    Ritstjórn

    1. maí 2026

  • Gervigreindar-vöktun og minna sjálfræði auka andlegt álag í starfi 

    Ný rannsókn Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) varpar ljósi á vaxandi áhættu í…

    Ritstjórn

    30. apr 2026

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026