Skapandi gervigreind (Gen AI) hefur meiri áhrif á stöðu kvenna á vinnumarkaði en karla

Höfundur

Ritstjórn

Skapandi gervigreind (GenAI) er að endurmóta heim vinnunnar og hefur möguleika til að auka framleiðni, styðja við nýsköpun starfa og bæta gæði þeirra. Áhrif hennar eru þó langt frá því að vera kynhlutlaus. Ný rannsóknarskýrsla frá ILO – Alþjóðavinnumálastofnuninni, varar við því að GenAI muni líklega hafa meiri áhrif á störf kvenna en karla, því störf þar sem konur eru í meirihluta eru næstum tvöfalt líklegri til að verða fyrir áhrifum tækninnar.

Í greininni Gen AI, occupational segregation and gender equality in the world of work kemur fram að konur séu í óhóflega miklum mæli útsettar fyrir GenAI af þremur meginástæðum: þær eru oftar í störfum sem eru viðkvæmust fyrir sjálfvirknivæðingu; þær eru enn í minnihluta í störfum sem tengjast gervigreind og í greinum á sviði vísinda, tækni, verkfræði og stærðfræði (STEM) auk þess sem gervigreindarkerfi endurspegla oft og endurframleiða kynbundna hlutdrægni sem er til staðar í samfélögum.

Tengdar fréttir

  • Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2026 kynnt

    Ný vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar, þar sem fjallað er þróun efnahagsmála og…

    Ritstjórn

    30. jún 2026

  • Veiking atvinnuleysistrygginga í vaxandi atvinnuleysi

    Atvinnuleysi hefur farið vaxandi síðastliðið ár. Samkvæm árstíðarleiðréttum tölum Hagstofu…

    Ritstjórn

    29. jún 2026

  • Ný lög breyta hlutverki stéttarfélaga við útgáfu atvinnuleyfa 

    Í lok árs 2025 var lagt fram frumvarp til breytinga…

    Ritstjórn

    25. jún 2026