Laun ekki orsök verðbólgunnar

Höfundur

Ritstjórn

Þvert á það víða er haldið fram af ráðamönnum seðlabanka og fræðimönnum eru laun ekki orsök verðbólgu um þessar mundir. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) þar sem bent er á að laun á heimsvísu hafi ekki haldið í við framleiðnivöxt frá aldarmótum. Gliðnunin hafi aukist í heimsfaraldrinum og ekki verið meiri frá aldarmótum. Þetta hefur þá þýðingu að hlutur launafólks í verðmætasköpun fer minnkandi yfir tíma.  

Í skýrslunni sem fjallar um þróun launa um heim allan og nefnist á ensku Global Wage Report kemur fram að raunlaun hafa að meðaltali lækkað um 0,9% frá því að fyrstu lotu COVID-veirufaraldursins lauk. Lækkunin nemur 1,4% ef Kína er tekið út úr tölfræðinni.  

Í ríkjum Evrópusambandsins þar sem stjórnvöld gripu til margvíslegra aðgerða til að verja störf og fyrirtæki hækkuðu raunlaun að meðaltali um 1,3% árið 2021 en lækkuðu um 2,4% á fyrri helmingi þessa árs.  

Umrædd skýrsla ILO nýtur viðurkenningar sem besta heimild um þróun launa. 

Ávísun á aukna fátækt 

Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC), segir að bilið milli framleiðni og launa á árinu sem brátt er liðið sé hið mesta í 20 ár. Framleiðni hafi aukist verulega á undanförnum árum en laun hafa staðið í stað vegna tregðu stjórnvalda víða um heim til að hefta græðgi stórfyrirtækja auk þess sem ráðandi öfl í mörgum löndum hafa takmarkað félagafrelsi og ráðist gegn verkalýðsfélögum og samtakamætti launafólks. 

Á heimsvísu jókst framleiðni um 12,6% umfram laun en þrátt fyrir það krefjast seðlabankastjórar víða um heim þess að laun haldist óbreytt. Þetta er ávísun á enn aukna fátækt þar sem heimili um veröld víða þurfa að neita sér um margvíslegar nauðsynjar á tímum gífurlegra verðhækkana og verðbólgu. ITUC telur með öllu ótækt að heimsbyggðin þurfi að lúta boðvaldi hagfræðinga og stefnusmiða sem neiti að horfast í augu við raunveruleikann og fylgja fræðikenningum sem glatað hafa öllum trúverðugleika.  

  

Tengdar fréttir

  • Samband íslenskra samvinnufélaga blæs til málþings

    Þann 3. september næstkomandi kl. 16 verður málþing í Kaldalóni…

    Ritstjórn

    2. sep 2025

  • Alþýðusamband Íslands og Lúðrasveit verkalýðsins hafa endurnýjað samstarf sitt

    Samstarf þessara tveggja aðila á sér djúpar rætur í íslenskri…

    Ritstjórn

    3. jún 2025

  • ASÍ styrkir Samhjálp um páska

    ASÍ styrkir Samhjálp um 400 þúsund krónur nú í aðdraganda…

    Arnaldur Grétarsson

    15. apr 2025

    Kaffistofa Samhjálpar og merki Samhjálpar