Launafólk sniðgengið við mat á efnahagslegum áhrifum sóttvarna

Höfundur

Ritstjórn
Yfirlýsing frá ASÍ, BSRB og BHM:
 
Forystukonur ASÍ, BHM og BSRB mótmæla því harðlega að fjármálaráðherra ætli ekki að hafa fulltrúa launafólks með í ráðum við mat á efnahagslegum áhrifum valkosta í sóttvarnarmálum. 
 
Við köllum eftir því að starfshópur fjármálaráðherra sem vinna mun reglulegar greiningar á efnahagslegum áhrifum valkosta í sóttvarnarmálum verði breikkaður þannig að sjónarmið fleiri en atvinnurekenda fái að koma þar fram. Það er gamaldags viðhorf að efnhagsmál snúist fyrst og fremst um fyrirtæki en ekki heimili og almenning.
 
Í tilkynningu fjármálaráðuneytisins um skipan starfshópsins er tekið fram að hann eigi að taka tillit til ólíkra samfélagahópa og geira hagkerfisins. Þar hefur fulltrúi stórfyrirtækja, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, verið kallaður til en fulltrúar launafólks eru víðs fjarri. Þetta er til marks um rörsýn fjármálaráðherra í efnahagsmálum, sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir íslenskt samfélag til framtíðar. 

Við krefjumst þess að fjármálaráðherra boði fulltrúa launafólks að borðinu þegar í stað. Að öðrum kosti verða tillögur starfshópsins og vinna hans ómerk.

Tengdar fréttir

  • Eftirlitsfulltrúar í námsferð til Helsinki

    Starfsdagar eftirlitsfulltrúa Alþýðusambands Íslands og stéttarfélaganna fóru fram í Helsinki…

    Kristjana Fenger

    7. nóv 2025

  • Vel heppnað þing ASÍ-UNG

    ASÍ-UNG hélt sitt 11. þing föstudaginn 17. október og var…

    Ritstjórn

    20. okt 2025

  • Skýrsla forseta ASÍ 2025 komin út

    Skýrsla forseta fyrir árið 2025 er að venju efnismikil og…

    Arnaldur Grétarsson

    17. okt 2025