Miðstjórn ASÍ ályktar um spillingu og arðrán

Höfundur

Ritstjórn

Starfsaðferðir sem verður að uppræta

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fordæmir með öllu því arðráni sem afhjúpað var í umfjöllun Kveiks og Stundarinnar í síðustu viku og skipulagðri spillingu þar sem auðlindir fátækrar þjóðar eru misnotaðar.

Starfsaðferðir Samherja í Namibíu beina sjónum að fjölmörgum þáttum í okkar samfélagi og hlutverki Íslands í samfélagi þjóðanna. Það er hrollvekjandi að sjá hvernig Samherji virðist hafa nýtt sér árangursríkt þróunarstarf íslenska ríkisins í Namibíu, siglt í kjölfar þess góða starfs og arðrænt fátækt samfélag. Íslensk verkalýðshreyfing stendur með vinnandi fólki í Namibíu og rétti þess til mannsæmandi kjara.

Það er ljóst að rannsakendur verða að fá skýrt umboð og fjármagn til að komast til botns í vinnubrögðum Samherja á erlendum vettvangi sem og innlendum eftir því sem tilefni er til. Þá vekur málið spurningar um samspil stjórnmála og stórfyrirtækja og nauðsyn þess að efla eftirlit og tryggja hlutleysi og möguleika eftirlitsstofnana til að sinna sínu nauðsynlega hlutverki.

Það er nauðsynlegt lýðræðinu og trausti að rannsókn málsins verði vönduð og þeir sem ábyrgð bera taki afleiðingum gjörða sinna.

Miðstjórn Alþýðusambandsins minnir á að ein undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar er sjávarútvegur þar sem starfa þúsundir félagsmanna aðildarfélaga ASÍ. Það skiptir máli hverjum er treyst fyrir sameiginlegri auðlind þjóðarinnar og það á að vera skýlaus krafa að farið sé vel með hana og allt samfélagið njóti arðs af henni. Meðferð sameiginlegra auðlinda okkar á ekki að dýpka stéttskiptingu eða misrétti á milli landssvæða.

Það er líka tilefni til að minna á að starfsfólk Samherja er ekki ábyrgt fyrir hegðun stjórnar og annarra stjórnenda fyrirtækisins frekar en almennt starfsfólk annarra fyrirtækja.

Alþýðusamband Íslands hvetur launafólk til að láta í sér heyra gegn spillingu og arðráni!

Tengdar fréttir

  • NÁMSKEIÐIÐ UNGIR LEIÐTOGAR HALDIÐ Í ÞRIÐJA SINN

    Ungir leiðtogar er námskeið ætlað ungu fólki innan verkalýðshreyfingarinnar. Áhersla…

    Ritstjórn

    20. jan 2025

    Ungir leiðtogar
  • Kvennaráðstefna ASÍ 2024 

    Ryðjum hindrunum úr vegi – kvenfrelsi og stéttabarátta. Kvennaráðstefna ASÍ…

    Ritstjórn

    14. nóv 2024

  • Ekki er allt gull sem glóir

    Göran Dahlgren og Lisa Pelling skrifa: Það var okkur ánægja…

    Ritstjórn

    14. okt 2024