Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins kynnir á fimmtudag nýja skýrslu um stöðu félagsfólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB sem starfa í leik- og grunnskólum.
Kynning á helstu niðurstöðum fer fram í ReykjavíkurAkademíunni, Hafnarstræti 5, 101 Reykjavík fimmtudaginn 30. apríl klukkan 10:00.
Dagskrá:
10:00-10:15. Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu, kynnir helstu niðurstöður.
10:15-10:25. Umræður og spurningar.
Hægt verður að fylgjast með beinu streymi frá kynningunni hér fyrir neðan





