Search
Close this search box.
Search
Close this search box.

Miklar verðhækkanir á jólamat milli ára – verðlækkanir í þremur verslunum

Jólamatur hækkaði í verði í flestum tilfellum og í meirihluta verslana milli 2019 og 2020 eða í fimm verslunum af átta. Iceland er eina verslunin þar sem verð lækkaði í meirihluta tilfella eða í 73%. Verð í Hagkaup lækkaði 47% tilfella en verð í Kjörbúðinni lækkaði í 42%. Minni verðmunur var á jólamat milli verslana í ár en árið 2019 og var munur á hæsta og lægsta verði í verslunum oftar minni í ár en í fyrra.
Miklar verðhækkanir voru í mörgum vöruflokkum milli ára. Í sumum verslunum má þó einnig sjá verðlækkanir milli ára. Verð á grænmeti og ávöxtum hækkar mest í verði milli ára en töluverðar verðhækkanir má sjá í fleiri matvöruflokkum eins og kornvöru, mjólkurvöru og drykkjarvöru.

Mestar verðhækkanir á grænmeti og ávöxtum og mjólkurvörur og kornvara hækka í flestum tilfellum
Grænmeti og ávextir hækkuðu í verði í flestum tilfellum milli ára og í flestum verslunum. Í mörgum tilfellum er um að ræða mjög miklar verðhækkanir sem nema tugum prósenta. Verð á grænmeti og ávöxtum lækkaði eða stóð í stað í flestum tilfellum í Iceland og Hagkaup en verð lækkaði einnig eða stóð í stað í þónokkrum tilvikum í Fjarðarkaup og Heimkaup.

Mjólkurvörur hækkuðu í flestum tilfellum í verslunum og hækkaði verð á lítra af nýmjólk frá MS til að mynda um um 5-8% í öllum verslunum nema í Iceland þar sem það lækkaði um 1%. Verð á MS Dala feta í kryddolíu hækkaði um 2-11% nema í Kjörbúðinni þar sem hann lækkaði um 7%. Þá hækkaði verð á Toppi sprauturjóma mikið eða um 5-33%. Mjólkurvörur lækkuðu oftast í verði í Iceland og í Kjörbúðinni milli ára.

Verð á kornvöru; brauði, kexi, smákökum og morgunkorni hækkaði í verði í flestum verslunum og mátti oft sjá miklar verðhækkanir í þessum vöruflokki eða frá 4% upp í 20% og stundum 30%. Verð í þessum vöruflokki lækkaði oftast í Iceland, Kjörbúðinni og Hagkaup.
Verð á kjöti hefur bæði hækkað og lækkað. SS hamborgarhryggur, m. beini og úrbeinaður lækkaði í verði í öllum þeim verslunum sem vörurnar fengust í. Verð á kjöti lækkaði í 6 tilfellum af 7 í Heimkaup, 4 tilfellum af 7 í Iceland og 8 tilfellum af 12 í Hagkaup auk þess sem verð stóð í stað í einu tilviki. Þá lækkaði verð á kjöti eða stóð í stað í 6 tilfellum af 10 í Bónus, 3 tilfellum af 7 í Krónunni, 3 tilfellum af 6 í Krónunni og í 4 tilfellum af 13 í Fjarðarkaupum.

Í mörgum tilfellum hækkaði verð á á konfekti, sælgæti og snakki og voru verðhækkanir á bilinu 3-16%. Íslenskt konfekt lækkaði frekar í verði en erlent og lækkaði verð á konfekti, nammi og snakki oftast í Iceland, Kjörbúðinni, Nettó og Hagkaup.
Þá voru töluverðar verðlækkanir á drykkjarvöru í sumum verslunum en verðhækkanir í öðrum. Verð á drykkjarvöru lækkaði oftast og mest í Iceland. Verð á drykkjarvörur lækkaði einnig eða stóð í stað í öllum tilfellum í Hagkaup og í meirihluta tilfella í Kjörbúðinni eða í 6 tilfellum af 10. Töluverðar verðhækkanir voru þó á drykkjarvöru í öðrum verslunum.

Samanburð milli verslana og tímabila má skoða á töfluformi hér.

Minni verðmunur á jólamat milli verslana 2020 en 2019
Minni verðmunur var á jólamat milli verslana í ár en árið 2019. Árið 2019 var munur á hæsta og lægsta verði yfir 20% í 80% tilfella en til samanburðar var munur á hæsta og lægsta verði þetta árið yfir 20% í 53% tilfella. Þá var munur á hæsta og lægsta verði yfir 40% í 41% tilfella árið 2019 en í 26% tilfella í ár.

Verðkönnun á jólamat 2020

Verðkönnun á jólamat 2019

Um úttektina
Þær verðbreytingar sem hér eru birtar miða við breytingar á verði verslana milli verðkannana verðlagseftirlits ASÍ frá 17. desember 2019 og 15. desember 2020. Rétt er að árétta að mæld eru þau verð sem eru í gildi á hverjum tíma í versluninni og geta tilboðsverð haft áhrif á verðbreytingar einstakra vara. Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Nettó, Bónus, Krónunni, Fjarðarkaupum, Iceland, Hagkaup, Kjörbúðinni og á Heimkaup.is.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Tengdar fréttir