Niðurskurður er ekki valkostur

Höfundur

Ritstjórn

Sérfræðingahópur verkalýðshreyfingarinnar sendir frá sér skýrslu um opinber fjármál í ljósi COVID-kreppunnar

Sérfræðingahópur verkalýðshreyfingarinnar vegna efnahagslegra áhrifa COVID-faraldursins varar við neikvæðum afleiðingum niðurskurðar og samdráttar á velferð og lýðheilsu og bendir á að ekki hafi verið gert nóg til að koma til móts við þá sem verst hafa orðið úti vegna efnahagskreppunnar sem faraldurinn hefur framkallað.

Skýrslu hópsins má nálgast hér

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu sérfræðingahóps verkalýðshreyfingarinnar sem birt er í dag. Hópurinn telur skuldir ríkisins ekki vera áhyggjuefni svo lengi sem vextir eru lægri en hagvöxtur. Skuldahlutfall Íslands sé í lægra lagi í alþjóðlegu samhengi og atvinna og afkoma ættu að vera lykilhugtök til að tryggja að hagvöxtur framtíðarinnar geti létt á skuldaálaginu. Lög og reglur um opinber fjármál eigi að styðja við þessi áhersluatriði og nauðsynlegt sé að endurmeta fjármálareglur laga um opinber fjármál áður en þær eru settar í samband að nýju.

Í skýrslunni fjallar sérfræðingahópurinn um opinber fjármál í tengslum við COVID-kreppuna og hvort tilefni sé til að endurskoða lagarammann í kringum þau. Fjallað er um gjörbreytta afstöðu helstu alþjóðastofnana til niðurskurðar sem viðbragðs við efnahagsþrengingum. Þá er fjallað um fjármálareglur, fjármálaáætlun 2022-2026, skuldir hins opinbera og hlutverk ríkisins þegar efnahagslegar hamfarir ríða yfir.

Hópurinn tók til starfa í september 2020 og hefur í  greiningum og skýrslum  leitast við að kortleggja áhrif COVID-faraldursins á ólíka þjóðfélagshópa. Lögð hefur verið áhersla á aðgerðir til að fyrirbyggja langtímaskaða og framkalla öfluga viðspyrnu þegar hamförunum lýkur.

Í sérfræðingahópnum eiga sæti:

Halla Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ, formaður

Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og situr í fjármálaráði

Guðrún Johnsen, efnahagsráðgjafi VR

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB

Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði

Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði

Ásgeir Sverrisson, sérfræðingur ASÍ, starfar með hópnum

Tengdar fréttir

  • ASÍ styrkir Samhjálp um páska

    ASÍ styrkir Samhjálp um 400 þúsund krónur nú í aðdraganda…

    Arnaldur Grétarsson

    15. apr 2025

    Kaffistofa Samhjálpar og merki Samhjálpar
  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2025

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Arnaldur Grétarsson

    8. apr 2025

    Eðvarð Sigurðsson
  • Engar tryggingar í frumvarpi um verð á raforku til almennings

    Stjórnvöld taki ekki tillit til sérstöðu raforkumála á Íslandi Alþýðusamband…

    Ritstjórn

    26. mar 2025