Hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar á störf og lífskjör launafólks og munu markmið stjórnvalda um réttlát umskipti nást?
Í aðdraganda þríhliða fundar norrænna stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar um réttlát umskipti, gangast BHM, BSRB og ASÍ fyrir sameiginlegum morgunverðarfundi í salnum VOX Club á Hótel Hilton Nordica, þriðjudaginn 14. nóvember kl. 08:30 – 10:00.
Fundarstaðurinn opnar klukkan 08:00 með því að boðið verður upp á morgunverð. Beint streymi verður af fundinum fyrir þau sem komast ekki á staðinn.
Loftslagsbreytingar munu hafa víðtæk áhrif á samfélagið, efnahag, atvinnulíf og vinnumarkað. Það hver áhrif breytinganna verða er undir því komið hvaða stefna verður mörkuð og hvort tryggt verði að aðgerðir í baráttunni gegn loftslagsbreytingum séu samræmdar markmiðum um starfs- og afkomuöryggi og góð lífskjör.
Á fundinum verður fjallað um hugmyndafræðina sem réttlát umskipti byggja á og hvaða þýðingu þau hafa fyrir íslenskt samfélag, vinnumarkað, efnahag og velferð launafólks. Leitast verður við að varpa ljósi á núverandi stefnu og aðgerðir stjórnvalda og hvað uppá vantar til að markmið um réttlát umskipti náist.
Hvað eru réttlát umskipti? Hvaða áhrif hafa loftslags- og tæknibreytingar á vinnumarkað og störf hér á landi? Stuðla aðgerðir íslenskra stjórnvalda að réttlátum umskiptum? Geta umhverfisskattar verið réttlátir og hvernig þá? Með hvaða hætti er hægt að samtvinna aukin réttindi á vinnumarkaði, bætt kjör og meiri lífsgæði við markmið í loftslagsmálum í kjarasamningum?
Dagskrá:
08:30 -08:45: Réttlæti sem forsenda virkrar samstöðu – Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs
08:45 – 09:05: Hvaða þýðingu hafa réttlát umskipti fyrir vinnumarkað og lífskjör? – Auður Alfa Ólafsdóttir, sérfræðingur í umhverfis- og neytendamálum hjá ASÍ
09:05 – 09:15: Réttlát stefnumótun, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir – hagfræðingur hjá BSRB
09:15 – 09:25: Grænir kjarasamningar, Kolbrún Halldórsdóttir – formaður BHM
09:25 – 10:00: Pallborð: Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB og Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM.

Fráfarandi framkvæmdastjóri Landverndar, Auður Önnu Magnúsdóttir verður fundarstjóri og stýrir pallborði.