Ríkisstjórnin endurskoði áform um jöfnunarframlag vegna örorku

Höfundur

Ritstjórn

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum 17. september:

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands ítrekar eindregna andstöðu sína við fyrirætlanir stjórnvalda um að fella niður framlag til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða sem hafa mun veruleg áhrif á lífeyrisréttindi í sjóðum verka- og láglaunafólks.  

Með þessu rjúfa stjórnvöld einhliða það samkomulag sem gert var við aðila vinnumarkaðarins um jöfnun á örorkubyrði árið 2005 án þess að forsendur þess hafi breyst eða um annað hafi verið samið sem tryggir jöfnun á örorkubyrði lífeyrissjóða. 

Áformin komu fyrst fram í tíð fyrri ríkisstjórnar og voru sett í samhengi við fjármögnun á endurbótum á örorkulífeyriskerfi almannatrygginga sem tóku gildi um síðastliðin mánaðarmót. Verka- og láglaunafólki var þannig gert að greiða fyrir löngu tímabærar kjarabætur til örorkulífeyrisþega með lífeyrisréttindum sínum. Núverandi ríkisstjórn heldur sér við þessi áform og bætir um betur með því að áforma skerðingar á réttindum í atvinnuleysistryggingum til að fjármagna það sem út af stendur vegna breytinganna. 

Alþýðusamband Íslands mótmælir þessum áformum harðlega og krefst þess að ríkisstjórnin endurskoði áform sín um niðurfellingu jöfnunarframlagsins þar til um annað fyrirkomulag hefur verið samið til að jafna örorkubyrði lífeyrissjóðanna með fullnægjandi hætti.  

ASÍ mun aldrei fallast á að verka- og láglaunafólk eitt verði látið bera byrðarnar af misskiptri örorkubyrði með frekari lækkun á lífeyrisréttindum sínum í nafni hagræðingar í ríkisrekstri.  

Tengdar fréttir

  • Ályktun miðstjórnar ASÍ um stefnuleysi stjórnvalda í málefnum innflytjenda

    Miðstjórn Alþýðusambands Íslands samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum í…

    Ritstjórn

    3. des 2025

  • Ályktun miðstjórnar ASÍ um vaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands

    Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur þá ákvörðun peningastefnunefndar að lækka stýrivexti…

    Ritstjórn

    19. nóv 2025

  • Ályktun um efnahags- og kjaramál

    Formannafundur ASÍ 2025 gagnrýnir harðlega niðurskurðarstefnu og samráðsleysi stjórnvalda og…

    Ritstjórn

    22. okt 2025