Seðlabankinn spáir 7% samdrætti og 10% atvinnuleysi

Höfundur

Ritstjórn

Yfirlýsing peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands 26. ágúst 2020

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans verða því áfram 1%.

Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í ágústhefti Peningamála eru horfur á að landsframleiðslan dragist saman um 7% í ár og útlit er fyrir að atvinnuleysi verði komið í um 10% undir lok ársins. Þótt horfur fyrir seinni hluta ársins séu heldur lakari en spáð var í maí er talið að samdrátturinn á árinu öllu verði nokkru minni en þá var gert ráð fyrir. Þar vegur þyngst að einkaneysla var kröftugri í vor og sumar. Óvissan er hins vegar óvenju mikil og þróun efnahagsmála mun ráðast af framvindu farsóttarinnar.

Verðbólga mældist 2,5% á öðrum fjórðungi ársins en var komin í 3% í júlí. Áhrif ríflega 12% lækkunar á gengi krónunnar frá því að farsóttin barst til landsins vega þar þungt. Verðbólguvæntingar til meðallangs og langs tíma hafa hins vegar lítið breyst og virðist kjölfesta verðbólguvæntinga í verðbólgumarkmiði bankans halda. Samkvæmt spá Seðlabankans er gert ráð fyrir að verðbólga verði í kringum 3% það sem eftir lifir árs en að mikill slaki í þjóðarbúinu og lítil alþjóðleg verðbólga geri það að verkum að hún taki að hjaðna á næsta ári og verði um 2% að meðaltali á seinni hluta spátímans.

Traustari kjölfesta verðbólguvæntinga hefur gert peningastefnunefnd kleift að bregðast við versnandi efnahagshorfum með afgerandi hætti. Lægri vextir og aðrar aðgerðir bankans sem gripið var til á vormánuðum hafa stutt við innlenda eftirspurn. Áhrif þeirra eiga þó eftir að koma fram að fullu og munu þær áfram styðja við þjóðarbúskapinn og stuðla að því að efnahagsbatinn verði hraðari en ella.

Tengdar fréttir

  • Vel heppnað þing ASÍ-UNG

    ASÍ-UNG hélt sitt 11. þing föstudaginn 17. október og var…

    Ritstjórn

    20. okt 2025

  • Skýrsla forseta ASÍ 2025 komin út

    Skýrsla forseta fyrir árið 2025 er að venju efnismikil og…

    Arnaldur Grétarsson

    17. okt 2025

  • ASÍ gagnrýnir niðurskurð og óttast aukna verðbólgu

    Alþýðusamband Íslands gerir athugasemdir við áform ríkisstjórnarinnar um niðurskurð eins…

    Ritstjórn

    17. okt 2025