SGS samþykkir að höfða mál fyrir Félagsdómi

Höfundur

Ritstjórn

Starfsgreinasamband Íslands harmar þá afstöðu samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga, að neita að ganga til kjarasamningsviðræðna um hvernig ná megi fram jöfnuði milli almenna og opinbera lífeyriskerfisins, sérstaklega hvað félagsmenn aðildarfélaga SGS og almennt verkafólk í þjónustu sveitarfélaganna varðar, líkt og samið var um í kjarasamningum 7.júlí 2009.

Nú þegar hefur stærsta sveitarfélag landsins ákveðið að efna samkomulag aðila fyrir sitt leiti en önnur þverskallast við og neita að ganga til viðræðna um jöfnun lífeyrisréttinda starfsmanna sinna á þeirri forsendu að þau hafi aldrei undirgengist slíka skyldu. SGS hafnar þeirri afstöðu alfarið enda ráð gert fyrir þessari óefndu jöfnun í öllum forsendum og útreikningum aðila eftir 2009.

Formannafundur SGS samþykkir því sambandið muni höfða mál fyrir Félagsdómi þar sem látið verður reyna á túlkun samningsákvæðisins frá 2009 um skyldu sveitarfélaga til þess að ganga til kjarasamningsviðræðna um jöfnun lífeyrisréttinda.

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026