Alþingi hefur samþykkt lög til að tryggja afkomu fólks sem ekki getur sinnt störfum sínum vegna náttúruhamfara í Grindavík. Jafnframt er markmiðið að viðhalda ráðningarsambandi atvinnurekenda og starfsfólks. Lögin gilda frá 11. nóvember til og með 29. febrúar 2024.
Vinnumálastofnun annast framkvæmd laganna. Á vef Vinnumálastofnunar hefur verið opnuð síða þar sem eftirfarandi geta sótt um tímabundinn stuðning:
- Atvinnurekendur á almennum vinnumarkaði sem greitt hafa starfsfólki laun sem geta ekki sinnt störfum sínum á starfsstöð í Grindavíkurbæ vegna náttúruhamfara.
- Starfsfólk sem getur ekki sinnt störfum sínum á starfsstöð í Grindavíkurbæ og launagreiðslur hafa verið felldar niður.
- Sjálfstætt starfandi einstaklingar sem geta ekki sinnt störfum sínum í Grindavíkurbæ.
- Opinberir starfsmenn og starfsmenn sveitarfélaga falla ekki undir þetta úrræði.
Vakin er athygli á að í því tilfelli sem ráðningarsamband er enn til staðar þarf viðkomandi launamaður ekki að sækja um stuðning.
Slóðin á síðu Vinnumálastofnunar er: https://vinnumalastofnun.is/umsokn-um-studning-vegna-natturuhamfara-i-grindavik