Útgáfufundur Kjaratölfræðinefndar 27. nóv

Höfundur

Ritstjórn

Nýjasta skýrsla Kjaratölfræðinefndar verður kynnt í húsakynnum ríkissáttasemjara fimmtudaginn 27. nóvember kl. 14:00. Í skýrslunni er umfjöllun um launaþróun á almennum og opinberum vinnumarkaði fram til júní 2025 og um launastig í maí 2025. Einnig er í skýrslunni að finna umfjöllun um samsetningu launa og launadreifingu í maí 2025, kjarasamninga sem gerðir hafa verið í yfirstandandi kjarasamningslotu, auk umfjöllunar um íslenskan vinnumarkað, þróun efnahagsmála og kaupmáttarþróun. 

Í tilefni af því að fimm ár eru frá fyrstu útgáfu Kjaratölfræðinefndar munum við í kjölfar kynningar á skýrslunni fá þrjá velunnara nefndarinnar til að segja nokkur orð um störf nefndarinnar.  Þau eru Edda Rós Karlsdóttir, sérfræðingur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og fyrsti formaður KTN, Henný Hinz, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ og fyrrum nefndarmaður og starfsmaður KTN og Sverrir Jónsson, skrifstofustjóri Alþingis og fyrrum formaður samninganefndar ríkisins. Hrafnhildur Arnkelsdóttir formaður KTN og Arnaldur Sölvi Kristjánsson sérfræðingur nefndarinnar fara yfir helstu niðurstöður skýrslunnar.

Viðburðinum verður streymt á vef Kjaratölfræðinefndar.

Tengdar fréttir

  • Rótgróinn ójöfnuður hamlar félagslegu réttlæti

    13. 01.26 Þrátt fyrir miklar framfarir í menntun, verulegan árangur…

    Ritstjórn

    13. jan 2026

  • Hver borgar fyrir heimsendinguna? 

    Heimsendingaþjónusta hefur aukist jafnt og þétt hérlendis sem og erlendis.…

    Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir

    22. des 2025

    Wolt merki
  • Jöfnun örorkubyrðar og víxlverkun

    Sameiginleg yfirlýsing ASÍ, SA og fjármálaráðuneytisins var undirrituð í dag.…

    Ritstjórn

    18. des 2025