Úthlutun úr Minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar 1. maí 2024

Höfundur

Ritstjórn

Á hverju ári er styrkjum úr Minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar úthlutað til verkefna sem varða sérstaklega íslenskan vinnumarkað, hagsmuni launafólks og starfsemi verkalýðshreyfingarinnar.

Í ár samþykkti stjórn sjóðsins að veita eftirfarandi styrki:

Guðmundur Ævar Oddsson og Kristinn Már Ársælsson hlutu 1.000.000 kr. til verkefnisins Huglæg virðingarstaða á tímum félagslegs umróts og róttækari verkalýðsbaráttu: Áhrif stéttarfélagsaðildar, stéttar og innflytjendastöðu. Verkefnið felur í sér rannsókn á áhrifum stéttarfélagsaðildar, stéttar og innflytjendastöðu á huglæga virðingarstöðu (e. subjective social status) á Íslandi frá árinu 2009. Huglæg virðingarstaða endurspeglar upplifun einstaklingar af stöðu sinni í virðingarstiga samfélagsins. Rannsóknin auki skilning á áhrifum stéttarfélagsaðildar og orðræðu verkalýðsforystu.

Hrafnkell Freyr Lárusson hlaut 500.000 kr. styrk til verkefnisins Lýðræði í mótun (bókarútgáfa). Um er að ræða ritverk um tilkomu og vöxt félaga og félagshreyfinga á Íslandi á árabilinu 1874-1915 og þáttur þeirra í lýðræðisþróun. Mikilvægur þáttur í lýðræðisþróun hafi verið stofnun fyrstu stéttarfélaga meðlýðræðislegu fyrirkomulagi. Rannsókn á íslenskri nútímavæðingu..

Magdalena Samsonowicz hlaut 300.000 kr. styrk til vinnslu MSc ritgerðar í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði – Samanburðarrannsókn á skynjunum, viðtökum og árangri af geðheilbrigðisíhlutunum á vinnustöðum á Íslandi. Verkefnið felur í sér eigindlega rannsókn sem auka á skilning á ástæðum þess að lítið er um forvarnir gegn geðheilsuvandamálum á íslenskum vinnustöðum. Geðheilsuvandamál eru helsta orsök örorku á Íslandi, en lítið um stuðning frá atvinnurekendum. Verkefnið gæti veiti innsýn í málaflokkinn og hvatt til markvissra aðgerða.

Skafti Ingimarsson hlaut 500.000 kr. styrk til þess að vinna að ævisögu Einars Olgeirssonar. Verkefnið varpi nýju ljósi á Einar Olgeirsson, bæði sem einstakling og stjórnmálamann. Um leið verði saga íslenskra stjórnmála og verkalýðshreyfingar rakin. Saga Einars nátengd sögu verkalýðshreyfingarinnar. Innlegg í íslenska stjórnmála- og verkalýðssögu á öldinni sem leið.

Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar var stofnaður árið 1983 til minningar um Eðvarð Sigurðsson, formann Verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Sjóðurinn er í umsjá Alþýðusambands Íslands.

Stjórn sjóðsins skipa: Finnbjörn A. Hermannsson, Grétar Þorsteinsson og Sólveig Anna Jónsdóttir.

Tengdar fréttir

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2025

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Arnaldur Grétarsson

    8. apr 2025

    Eðvarð Sigurðsson
  • 23 mínútur gengin í þrjú – á Kvennaári

    Í tilefni Kvennaárs 2025 hefur Listasafn ASÍ fengið sérstakt leyfi…

    Ritstjórn

    8. apr 2025

  • Nýr dómur: Sendlar Wolt í Noregi eru í ráðningarsambandi

    Þann 4. mars sl. kvað undirréttur á Oslóarsvæðinu í Noregi…

    Halldór Oddsson

    8. apr 2025

    Wolt merki